Menningar- og ferðamálaráð - Fundur nr. 301

Menningar- og ferðamálaráð

Ár 2018, mánudaginn 9. apríl var haldinn 301. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.32. Viðstaddir: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Þórgnýr Thoroddsen, Margrét M. Norðdahl, Stefán Benediktsson, Marta Guðjónsdóttir og Þorgerður Agla Magnúsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina: Rakel Dögg Óskarsdóttir. Áheyrnarfulltrúi BÍL: Birna Hafstein. Áheyrnarfulltrúi SAF: Rannveig Grétarsdóttir. Af hálfu starfsmanna: Huld Ingimarsdóttir, Sif Gunnarsdóttir, Signý Pálsdóttir, Arna Schram og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á ráðningu Sifjar Gunnarsdóttur í starf skrifstofustjóra menningarmála á menningar- og ferðamálasviði.

  2. Fram fer kynning á starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. RMF18040001

    Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og Margrét Ragnarsdóttir, kynningar- og markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
    a
    -    Kl. 13:43 tekur Herdís Anna Þorvaldsdóttir sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á Barnamenningarhátíð 2018 sem fram fer í Reykjavík dagana 17.-22. apríl. RMF17080005

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í menningar- og ferðamálaráði, Marta Guðjónsdóttir, leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ljóst er að borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, nýtir hvert tækifæri til að minna á sjálfan sig, á kostnað skattgreiðenda,  í aðdraganda kosninga eins og bæklingur barnamenningar ber með sér.

    Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefnastjóri barnamenningar, og Björg Jónsdóttir, verkefnastjóri viðburða, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á niðurstöðum þjónustukönnunar meðal borgarbúa á þjónustu sviðsins, og kynning á niðurstöðum starfsmannakönnunar menningar- og ferðamálasviðs. RMF18040002

    Baldur Örn Arnarson mannauðsstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 15:00 víkur Stefán Benediktsson af fundinum.

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um borgarlistamann 2018. RMF18020005

Fundi slitið klukkan 15:25

Marta Guðjónsdóttir