Menningar- og ferðamálaráð
Ár 2017, mánudaginn 11. desember var haldinn 294. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.33. Viðstaddir: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Þórgnýr Thoroddsen, Margrét Norðdahl og Herdís Anna Þorvaldsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina: Trausti Harðarson. Áheyrnarfulltrúar BÍL: Kolbrún Halldórsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir. Af hálfu starfsmanna: Signý Pálsdóttir og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.fsmanna: Signý Pálsdóttir og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um styrki menningar- og ferðamálaráðs 2018. RMF17080004
Formaður ráðgefandi faghóps um styrki ráðsins tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 13.34 tekur Stefán Benediktsson sæti á fundinum.
Kl. 13.36 tekur Börkur Gunnarsson sæti á fundinum.
Kl. 13.42 tekur Þorgerður Agla Magnúsdóttir sæti á fundinum.
-
Fram fer kynning á bráðabirgðaviðgerðum á útilistaverkum í eigu Reykjavíkurborgar.
Ólöf Kristín Sigurðardóttir og Sigurður Trausti Traustason taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves árið 2017. RMF16080010
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 15.43 víkur Trausti Harðarson af fundinum.
Fylgigögn
-
Fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að menningar- og ferðamálaráð hefji skoðun á hugmynd þeirri/verkefni að setja upp listamanna hannaðan áhorfendabekk/áhorfendastúku sem gæti tekið góðan fjölda í sæti, við sjóinn meðfram Sæbraut fyrir ferðamenn og borgarbúa til að fjöldinn gæti setið saman og horft á Esjuna, Skarðsheiði, Akrafjall og fylgst með fallegri náttúru Íslands við höfuðborgina. Áhorfendastúkur eins og þessar eru þekktar á ferðamannastöðum þar sem fólk þarf að fá góðan tíma til að njóta þess að horfa á umhverfið, náttúruna og annað fólk í leik og starfi. Vinsælir bekkir/stúkur eins og þessar í erlendum borgum eru t.d. rauðu tröppurnar við Times Square í New York og tröppurnar við Robson Square í Vancouver.
Frestað.
Fundi slitið klukkan 15:55