Menningar- og ferðamálaráð - Fundur nr. 292

Menningar- og ferðamálaráð

Ár 2017, mánudaginn 13. nóvember var haldinn 292. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.32. Viðstaddir: Elsa Hrafnhildur Yeoman, Þórgnýr Thoroddsen, Margrét Norðdahl, Stefán Benediktsson og Örn Þórðarson. Áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina: Trausti Harðarson. Áheyrnarfulltrúi BÍL: Kolbrún Halldórsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir. Af hálfu starfsmanna: Signý Pálsdóttir, Huld Ingimarsdóttir og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á fundaumsjónakerfinu fundur.reykjavik.is.

    Bjarni Þóroddsson, sérfræðingur á skrifstofu borgarstjórnar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

     

    -        Kl. 13.33 tekur Þorgerður Agla Magnúsdóttir sæti á fundinum.

    -        Kl. 13.34 tekur Börkur Gunnarsson sæti á fundinum.

  2. Fram fer kynning á árshlutauppgjöri menningar- og ferðamálasviðs fyrir janúar – september 2017. RMF17050011

    -           Kl. 13.48 tekur Arna Schram sæti á fundinum.

  3. Lögð fram að nýju drög að aðgerðaáætlun Menningarstefnu fyrir 2018. RMF 17100007

    Samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram tillaga að skipan dómnefndar um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2017.

    Samþykkt að dómnefndia skipi Úlfhildur Dagsdóttir formaður, Börkur Gunnarsson og Þórarinn Eldjárn sem tilnefndur var af Rithöfundasambandi Íslands. RMF17090005

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju tillaga Framsóknar og flugvallarvina um auka framlag til að ráða starfskraft fyrir Reykjavik Loves, sbr. 5. lið lið fundargerðar menningar- og ferðamálaráðs frá 9. október 2017. Einnig lögð fram umsögn sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs um tillöguna. RMF17100003

    Frestað.

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, árið 2017. RMF16080010

    Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Fram fer kynning á framkvæmd tendrun friðarsúlunnar árið 2017. RMF17090006

    Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða, og Áshildur Bragadóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  8. Lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar til menningar- og ferðamálasviðs, dags. 3. október 2017, þar sem óskað er umsagnar um bréf mannréttindastjóra, dags. 28.9.2017 varðandi færslu fjölmenningardags frá mannréttindaskrifstofu til menningar- og ferðamálasviðs. RMF17100001

    Halldóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum, Joanna Marckinkowska, sérfræðingur í innflytjendamálum á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og Elínu Oddnýju Sigurðardóttur, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  9. Áheyrnarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Í ljósi þess að RIFF Kvikmyndahátíð, hefur fengið árlega veglega styrki frá Reykjavíkurborg er óskað eftir nýjasta ársreikning RIFF.

Fundi slitið klukkan 16:13