Menningar- og ferðamálaráð
Menningar- og ferðamálaráð
Ár 2014, mánudaginn 27. apríl var haldinn 235. fundur menningar- og ferðamálaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13:30. Viðstaddir: Elsa Hrafnhildur Yeoman formaður, Þórgnýr Thoroddsen, Stefán Benediktsson, Björn Jón Bragason, Örn Þórðarson og Ingvar Mar Jónsson. Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna: Líf Magneudóttir. Áheyrnarfulltrúar BÍL: Jakob Frímann Magnússon og Jóna Hlíf Halldórsdóttir. Áheyrnarfulltrúi SAF Þórir Garðarsson. Af hálfu starfsmanna: Svanhildur Konráðsdóttir og Signý Pálsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Lögð fram tilnefning SAF dags. 20. apríl 2015 um að Rannveig Grétarsdóttir taki sæti Ólafs Torfasonar sem varaáheyrnarfulltrúi SAF í menningar- og ferðamálaráði. (RMF14060013)
Samþykkt.
2. Lagt fram svar safnstjóra Listasafns Reykjavíkur dags. 22. apríl 2015 við tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lögð var fram á 232. fundi um að listaverk úr safneign verði gerð sýnilegri í skólum borgarinnar. (RMF15040003)
Frestað.
3. Ráðning safnstjóra Listasafns Reykjavíkur. Svanhildur Konráðsdóttir sviðsstjóri fer yfir stöðu mála. Trúnaðarmál fram að ráðningu. (RMF14110003)
- Kl. 13:34 tekur Dóra Magnúsdóttir sæti á fundinum.
4. Svanhildur Konráðsdóttir sviðsstjóri kynnir niðurstöður viðhorfskönnunar meðal starfsmanna Reykjavíkurborgar.
5. Umræðum um breyttar verklagsreglur um úthlutun styrkja og samstarfssamninga menningar- og ferðamálaráðs frestað.
6. Menningar- og ferðamálaráð samþykkti eftirfarandi bókun:
Menningar- og ferðamálaráð vill þakka öllu því góða og hæfileikaríka starfsfólki sem kom að vinnu og skipulagningu Barnamenningarhátíðar í Reykjavík 2015. Það er ómetanlegt að hægt sé að hlúa svo vel að listuppeldi og sköpun barna í samræmi við menningarstefnu Reykjavíkurborgar. Um leið er börnum og öllum borgarbúum þökkuð mikil og góða þátttaka og margvíslegt framlag til viðburða.
Fundi slitið kl. 14:31
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Þórgnýr Thoroddsen Stefán Benediktsson
Dóra Magnúsdóttir Ingvar Mar Jónsson
Björn Jón Bragason Örn Þórðarson
PDF útgáfa fundargerðar
Menningar- og ferðamálaráð 27.4.2015 - prentvæn útgáfa