Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð - Fundur nr. 99

Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð

Ár 2023, föstudaginn 13. október var haldinn 99. fundur menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:35. Viðstödd voru: Skúli Helgason formaður, Kjartan Magnússon, Kristinn Jón Ólafsson, Pawel Bartoszek, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf og Stefán Pálsson.  Erling Jóhannesson áheyrnarfulltrúi BÍL.  Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Eiríkur Björn Björgvinsson, Steinþór Einarsson, María Rut Reynisdóttir og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á Leikfélagi Reykjavíkur.

    Brynhildur Guðjónsdóttir og Kristín Ögmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  2. Fram fer kynning á skapandi starfsemi í húsnæði Reykjavíkurborgar.

    Óli Jón Hertervig og Daniela Katarzyna Zbikowska frá Eignaskrifstofu taka sæti á fundinum undir þessum lið.

  3. Lagt fram matsblað fyrir styrkumsóknir í borgarsjóð á sviði menningarmála.

    Fylgigögn

  4. Lagður fram undirskriftalisti Sund- og sjóðbaðsfélags Reykjavíkur dags. 28. september 2023 varðandi opnunartíma á Ylströndinni í Nauthólsvík. 

    Fylgigögn

  5. Lögð fram fjárhagsáætlun menningar- og íþróttaráðs fyrir árið 2024. Trúnaðarmál.

    Fjárhagsáætluninni er vísað til borgarráðs.

    Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar leggja fram bókun sem lögð er fram i trúnaðarbók. 

  6. Sviðsstjóri fór yfir framgang vinnu við sameiningu á nýju sviði.

  7. Lagt fram svar sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins í borgarráði 21. september 2023 um skíðalyftuna í Breiðholti.

  8. Lagt fram svar deildarstjóra safneignar og rannsókna Listasafns Reykjavíkur við fyrirspurn fulltrúa Vinstri grænna í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði um ástand listaverka í almannarými í eigu borgarinnar.

    Fylgigögn

  9. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um kostnað Reykjavíkurborgar vegna borgarhátíða og aðrar hátíðir í borginni síðustu þrjú ár, 2021-2023.

  10. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að við sameiningu málaflokka íþróttamála, menningarmála og tómstundamála, verði heiti hins nýja sviðs ,,íþrótta- og menningarsvið“. Heiti ráðsins verði ,,íþrótta- og menningarráð“. Með því að láta stafrófsröð ráða í heitinu er lögð áhersla á að þessir mikilvægu málaflokkar séu jafnréttháir í starfsemi Reykjavíkurborgar.

    Frestað.

Fundi slitið kl. 11:55

Skúli Helgason Kristinn Jón Ólafsson

Pawel Bartoszek Sabine Leskopf

Stefán Pálsson Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- íþrótta- og tómstundaráðs frá 13. október 2023