Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð - Fundur nr. 98

Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð

Ár 2023, föstudaginn 22. september var haldinn 98. fundur menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 12:05. Viðstödd voru: Skúli Helgason formaður, Birkir Ingibjartsson varamaður fyrir Kristinn Jón Ólafsson, Pawel Bartoszek, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf og Stefán Pálsson.  Anna Eyjólfsdóttir varaáheyrnarfulltrúi BÍL og Frímann Ari Ferdinandsson varaáheyrnarfulltrúi ÍBR.  Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Eiríkur Björn Björgvinsson, Steinþór Einarsson, María Rut Reynisdóttir og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skristofu borgarstjórnar dags. 7. september 2023 þar sem fram kemur að Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir taki sæti sem varamaður í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði í stað Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur.
     

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á Friðarsúlunni, verkefninu og tendrum 2023.

        Sigurður Trausti Traustason, Markús Þór Andrésson frá Listasafni Reykjavíkur og Björg Jónsdóttir frá Viðburðarteymi Reykjavíkurborgar sitja fundinn undir þessum lið.

    -    kl. 12:17 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum.

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags. 12. september 2023 þar sem vísað er til umfjöllunar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs tillögu borgarstjóra dags. 5. september 2023.  USK22090017 
        Fram fer kynning á skýrslu um Haftenda upplifun og útivist í Reykjavík.

        Rebekka Guðmundsdóttir borgarhönnuður tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

        Fulltrúar meirihluta Samfylkingar og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samspil útivistar og lýðheilsu er brýnt verkefni ráðsins og baðmenning landans er stór hluti af aðdráttarafli landsins gagnvart ferðafólki sem sækir okkur heim. Skýrslan um haftengda upplifun dregur vel fram þau sóknarfæri sem felast í málaflokknum og tengist m.a. hinu nýja áherslusviði sviðsins Útilífsborginni.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofustjóra menningarborgar dags. 6. september 2023 ásamt viðauka við samstarfssamning Reykjavíkurborgar og Menningarfélagsins Tjarnarbíó um rekstur Tjarnarbíós. MOF23010075

        Samþykkt.

        Fulltrúar meirihluta Samfylkingar og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tjarnarbíó gegnir mikilvægu hlutverki sem hjarta sjálfstæðra sviðslista í borginni og því er mikið fagnaðarefni að tekist hafi samstarf milli Reykjavíkurborgar og Menningar- og viðskiptaráðuneytisins um að styrkja grundvöll starfseminnar bæði til skemmri tíma en líka með vinnu við að kortleggja hvernig megi bæta aðstöðu og styrkja rekstrarforsendur til framtíðar og gera þær sjálfbærari. Það er metnaðarmál meirihluta ráðsins að hlúa vel að grasrót sviðslistanna í borginni og þessi samningur er stórt skref í þá átt.
     

    Fylgigögn

  5. Lagt fram yfirlit um úthlutun úr Úrbótasjóði tónleikastaða 2020-2022.   

        Fulltrúa meirihluta Samfylkingar og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Úrbótarsjóður tónleikastaða er verkefni sem var sett á fót árið 2019 til að efla tónleikaaðstöðu í borginni. Verkefnið hefur skilað góðum árangri en var hugsað sem tímabundið tilraunaverkefni til tveggja ára sem framlengt var um eitt ár en hefur nú runnið sitt skeið. Lærdómurinn verður rýndur vel með framtíðina í huga því enn er mikilvægt að leita leiða til að bæta aðstöðu til tónleikahalds í borginni rétt eins og úrbóta á aðstöðu sviðslista almennt.

    Fylgigögn

  6. Lagður fram til kynningar, viðaukasamningur við samstarfssamning við Stelpur rokka.

    Fylgigögn

  7. Lagður fram til kynningar samningur milli Reykjavíkurborgar og Frisbígolffélagsins um umsjón á færanlegu húsnæði í Leirdal. 

    Fylgigögn

  8. Fram fer umræða um aðstöðu til tennisiðkunar.

    -    kl. 13:27 víkur Anna Eyjólfsdóttir af fundi.  

  9. Lagt fram bréf Klifurfélags Reykjavíkur dags. 1. september 2023 varðandi húsnæðismál félagsins. 
        Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

    -    kl. 13:35 víkur Frímann Ari Ferdinandsson af fundi.

    Fylgigögn

  10. Fram fara umræður um fjárhagsáætlun menningar- og íþróttasviðs 2024. 

        Fulltrúar meirihluta Samfylkingar og Viðreisnar leggja fram bókun sem færð er í trúnaðarbók.

  11. Lögð fram að nýju tillaga Sjálfstæðisflokksins sbr. 6. liður fundargerðar frá 9. júní um kjaramál í Borgarleikhúsinu.

        Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingar og Viðreisnar gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.  Fulltrúi Vinstri grænna situr hjá.  

  12. Lagt fram svar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði 25. ágúst 2023 varðandi lokun á undirgögnum við Nauthólsveg.

    Fylgigögn

  13. Lagt er til að tekið verði á dagskrá með afbrigðum reglur um úthlutun styrkja og samstarfssamninga Reykjavíkurborgar á sviði menningarmála.

        Samþykkt að taka málið á dagskrá.

        Reglurnar samþykktar með atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og Vinstri grænna.  Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.     

    Fylgigögn

  14. Fulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir minnisblaði um ástand útilistaverka, höggmynda og lágmynda og annarra útilistaverka í almannarými og eigu borgarinnar og viðhaldsþarfar þeirra. Þá er óskað eftir greinargerð um stöðu þrívíddarskönnunar og áætlun fjármögnunar á viðhaldi og viðgerðum útilistaverka fyrir 2023.
     

Fundi slitið kl. 14:20.

Skúli Helgason Birkir Ingibjartsson

Pawel Bartoszek Sabine Leskopf

Stefán Pálsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Kjartan Magnússon

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- íþrótta- og tómstundaráðs frá 22. september 2023