Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð
Ár 2018, mánudaginn 20. ágúst var haldinn 2. fundur menningar- íþrótta- og tómstundaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.30. Viðstaddir: Pawel Bartoszek, Hjálmar Sveinsson, Sabine Leskopf, Elín Oddný Sigurðardóttir, Örn Þórðarson og Baldur Borgþórsson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Arna Schram, Steinþór Einarsson, Andrés Andreasen, Huld Ingimarsdóttir, Helga Björnsdóttir og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 29. júní sl. vegna kosningar í menningar-, íþrótta- og tómstundaráð. RMF18060004
Fylgigögn
-
Lögð fram til samþykktar starfsáætlun menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs 2018-2019. RMF18060004
Samþykkt.
Kl. 13.33 tekur Katrín Atladóttir sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á sex mánaða uppgjöri menningar- og ferðamálasviðs. RMF18050002
-
Lagt fram til kynningar skipurit menningar- og ferðamálasviðs. RMF18050002
Fylgigögn
-
Lagðar fram til samþykktar reglur um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. RMF18040006
Vísað til borgarráðs til staðfestingar.
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð fagnar því að fram séu komin verðlaun sem nefnd eru eftir Guðrúnu Helgadóttur og vonast til að tilkoma þeirra hafi jákvæð og hvetjandi áhrif á útgáfu barnabóka í landinu.
Fylgigögn
-
Lagðar fram til samþykktar úthlutunarreglur og áherslur menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs vegna úthlutunar styrkja til menningarmála úr borgarsjóði fyrir árið 2019. RMF18080005
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lagðar fram reglur um Ásmundarsafn.
Samþykkt að Hjálmar Sveinsson og Katrín Atladóttir taki í stjórn safnsins til næstu fjögurra ára. Samþykkt að Hjálmar Sveinsson verði formaður stjórnar Ásmundarsafns. RMF18080006
Fylgigögn
-
Lögð fram hugmynd frá samráðsvefnum Betri Reykjavík dags. 2. júlí 2018 varðandi tennishús í Laugardal.
Vísað til sviðsstjóra íþrótta- og tómstundasviðs til skoðunar.
Fylgigögn
-
Lagt fram boðsbréf frá Gautaborg dags. 4. júlí sl. um þátttöku á norrænni vinabæjarráðstefnu um íþrótta-, tómstunda- og frístundamál dagana 26.-28. september 2018.
Samþykkt að þiggja boðið.
Vísað til meðferðar sviðsstjóra íþrótta- og tómstundasviðs og formanns menningar-, íþrótta og tómstundaráðs.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 1. júní 2018 varðandi Fossvogsbrú.
Vísað til sviðsstjóra íþrótta- og tómstundasviðs.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað hjólaskautafélagsins Roller Derby Ísland um hjólaskautaaðstöðu.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um rekstur sundlauga Reykjavíkurborgar.
-
Lagt fram yfirlit um aðsókn á sundstaði fyrstu sjö mánuði ársins.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skálanefndar ÍR og Víkings dags. 24. maí sl. vegna styrks vegna bráðaviðgerða á skíðaskála félaganna.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Dansfélagsins Bíldshöfða dags. 20. maí 2018 vegna húsnæðismála.
Vísað til sviðsstjóra íþrótta- og tómstundasviðs.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað Fylkis dags. 17. júlí sl. vegna styrks fyrir tjald í íþróttahúsi í Norðlingaholti.
Vísað til sviðstjóra íþrótta- og tómstundasviðs.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 4. júlí 2018 með ósk um umsögn um styrkbeiðni Kátt á Klambra barnahátíðarinnar.
Samþykkt að fela sviðsstjórum menningar- og ferðamálasviðs og íþrótta- og tómstundasviðs að skrifa umsögn um styrkbeiðnina.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á sex mánaða uppgjöri íþrótta- og tómstundasviðs.
-
Lagt fram til kynningar skipurit íþrótta- og tómstundasviðs.
Fylgigögn
-
Lögð fram skýrsla aðalstjórnar Víkings 2017 – 2018.
Fylgigögn
Fundi slitið klukkan 16:15
Pawel Bartoszek Hjálmar Sveinsson