Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð
Ár 2019, mánudaginn 28. janúar var haldinn 11. fundur menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hann kl. 13.30. Viðstaddir: Pawel Bartoszek, Hjálmar Sveinsson, Sabine Leskopf, Elín Oddný Sigurðardóttir, Björn Gíslason, Katrín Atladóttir og Baldur Borgþórsson. Áheyrnarfulltrúi BÍL: Erling Jóhannesson. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Arna Schram og Inga María Leifsdóttir sem ritaði fundargerð
Þetta gerðist:
-
Fram fara umræður um starfsdag menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs sem ráðgerður er þ. 1. febrúar nk.
Samþykkt að Pawel Bartoszek, Björn Gíslason og Elín Oddný Sigurðardóttir verði í undirbúningshópi vegna skipulags dagsinsFylgigögn
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra dags. 24. janúar sl. um að Anna Jóhannsdóttir taki sæti í innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur sbr. erindi safnstjóra Listasafns Reykjavíkur dags. 18. janúar sl. um fulltrúa í innkaupanefndinni. RMF14110010
Samþykkt.Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra dags. 24. janúar sl. um að Logi Bjarnason, formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, taki sæti í stjórn safnsins út yfirstandandi kjörtímabil ásamt Katrínu Atladóttur og Hjálmari Sveinssyni, sem skipuð voru í stjórnina af menningar-, íþrótta- og tómstundaráði þ. 20. ágúst sl. RMF18080006
Samþykkt.Fylgigögn
-
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir skipan í hússtjórn Borgarleikhússins. RMF18030006
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjölmenningardag, sbr. 8. lið fundargerðar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs frá 8. október 2018. RMF18100003
Samþykkt að vísa tillögunni til fjölmenningarráðs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Vinstri grænna í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði leggja fram svohljóðandi bókun:
Á fundi þann 14. sept. sl. samþykkti fjölmenningarráð að fela mannréttindaskrifstofu undirbúning vinnu við ákveðnar breytingar á fjölmenningardeginum í takt við fyrirmynd frá Kristiansand. Vinna við endurskoðun fjölmenningardagsins er því þegar hafin á þeim vettvangi. Fulltrúar meirihluta í MÍT taka samt sem áður undir að mikilvægt sé að efla þátttöku innflytjenda í öllum borgarhátíðum með markvissum hætti samhliða þeirri vinnu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins telja eðlilegt að tillaga Sjálfstæðisflokksins um fjölmenningarhátíð hefði verið borin upp til atkvæða. Mikilvægt er að hátíðin verði áfram viðburður og fögnum því að endurskoðun sé farin í gang á hlutverki fjölmenningarhátíðar og reynt verði að efla þátttöku fólks af erlendum uppruna í öllum hátíðum borgarinnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram afgreiðsla menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs vegna styrkja ráðsins á sviði menningarmála 2019 sem lögð var fram og bókuð í trúnaðarbók ráðsins á fundi þess 10. desember sl., ásamt greinargerð faghóps skipuðum fulltrúum Bandalags íslenskra listamanna og Hönnunarmiðstöðvar dags. 3. desember 2018. RMF18080005
Svohljóðandi tillaga var lögð fram:Gerðir verði samstarfssamningar vegna áranna 2019-2020 við eftirtalda aðila með árlegu framlagi með fyrirvara um samþykki borgarráðs og heimildir í fjárhagsáætlun 2020:
4.000.0000 kr. Rvk Dance Festival
2.000.000 kr. ASSITEJ Íslandsdeild alþjóðasamtaka um barnaleikhús
2.000.000 kr. Myndhöggvarafélag Reykjavíkur sem einnig er
tilnefnt Listhópur Reykjavíkur1.500.000 kr. Múlinn Jazzklúbbur
1.000.000 kr. Harbinger sýningarrými fyrir myndlist
Styrkir til verkefna árið 2019:
3.000.000 kr. Lókal, leiklistarhátíð – Lókal leiklistarhátíð
2.000.000 kr. Hlynur Helgason – Hjólið II - Úthverfi
Pera Óperukollektíf – Áframhaldandi Óperudagar1.500.000 kr. Íslensk grafik – Íslensk grafík í hálfa öld, 1969-2019
Reykjavík Fashion Festival ehf – Reykjavik Fashion Festival 20191.000.000 kr. Lúðrasveit Reykjavíkur – Tónleikahald og önnur verkefni 2019
Bára Kristín Kristinsdóttir – Ramkram - ljósmyndagallerí
SÍM – Torg 2019, Listamessa í Reykjavík
SÍM – Mánuður Myndlistar 2019
Félag um Ljósmyndahátíð Íslands – Ljósmyndahátíð Íslands 2020
Afrika-lole, áhugamannafélag – FAR Fest Afríka Reykjavík 2019
Kvennakórinn Vox Feminae – Tónleikar, upptökur, samning tónverka, málþing
Lúðrasveit verkalýðsins – Lúðrasveit verkalýðsins
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir – IBBY á Íslandi
Evrópusamband píanókennara – Evrópusamband píanókennara á Íslandi í 40 ár
Steinunn Þórarinsdóttir – Steinunn Þórarinsdóttir í Hallgrímskirkju
Hönnunarmiðstöð Íslands ehf – DesignTalks - alþjóðleg ráðstefna í Hörpu
Hinsegin dagar í Reykjavík – 20 ára afmælishátíð Hinsegin daga í Reykjavík800.000 kr. Sigríður Heimisdóttir – Glerlíkaminn
Freyja Eilíf Helgudóttir – Ekkisens, sýningar og viðburðarými
Alþjóðlega tónlistarakademian í Hörpu – HIMA 2019750.000 kr. Sigurbjartur Sturla Atlason – Haha
Páll Einarsson – Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, tónleikar 2019
Gunnsteinn Ólafsson – Starf Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins 2019700.000 kr. Alþýðuóperan, áhugamannafélag – KOK
Margrét Arnardóttir – Reykjavík Folk Festival
Jóna Elísabet Ottesen – Kátt á Klambra 2019600.000 kr. Guðný Guðmundsdóttir – Hádegistónleikar
Sólfinna ehf. – Freyjujazz500.000 kr. Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar – Lífið er heimsins besta gotterí!
Hala-leikhópurinn – Uppsetning á leikverki og rekstur leikhúss
Handverk og hönnun – Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur
Ármann Helgason – Kammertónleikar Camerarctica 2019
Klassíski Listdansskólinn - Mjóddamamma
Kjartan Ólafsson – ErkiTíð - íslensk tónlistarhátíð
Pamela De S. Kristbjargardóttir – Börnin tækla tónskáldin 2019
Töfrahurð sf. – Ólafía H. Jónsdóttir og Kammersveit Rvk. með Árstíðirnar
Leikfélagið Hugleikur – Leikhús við Langholtsveg
Íslenski flautukórinn – Hádegistónleikaröðin Andrými 2019
Ástbjörg Rut Jónsdóttir – Golden Age
Þórunn Lárusdóttir – Konukot
Tinna Hrafnsdóttir – Marinetti
Hannesarholt – Hið nýja samfélag og Hannes Hafstein
Jóhann Lúðvík Torfason – Húsin við Laugaveg
Vignir Rafn Valþórsson – Góða Fólkið
Ragnheiður Ásgeirsd. El Azan – Íslensk leiklestrarhátíð í París 2019
Halldór Ásgeirsson – Myndfánar
Sigrún Guðmundsdóttir – Söfnun skólahandavinnu í textíl
Bergljót Arnalds – Perlurnar okkar
Ragna Fróðadóttir – Heritage meets the future - Textílráðstefna
Anna María Tómasdóttir – The last kvöldmáltíð
Olga Sonja Thorarensen – SJÁLFIN
Birgir Örn Thoroddsen – Sýnishorn - annað starfsár
Bergþóra Linda Ægisdóttir – Sónata - ævintýraópera430.000 kr. Dudo ehf – Iceland Writers Retreat
400.000 kr. Elfa Lilja Gísladóttir – Upptakturinn 2019
Finnur Arnar Arnarson – Bók um Skúrinn
Ragnhildur Ásvaldsdóttir – Í skjóli fyrir vindum
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir – ÉG BÝÐ MIG FRAM
Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir – Reykjavík Underground - Grafískar konur
Gerður Sif Ingvarsdóttir – Reykjavik Metalfest 2019
Hringleikur - Sirkuslistafélag – Nýsirkus-vinnustofur Hringleiks
Listvinafélag Hallgrímskirkju – Dagskrá 37. starfsárs
300.000 kr. Wioleta Anna Ujazdowska – Hidden People
Ragnheiður Árnadóttir – Rödd og Raf
Jón Helgi Þórisson – Landnámsmenning 2019
Hallveig Rúnarsdóttir – Jóhannes í nýju ljósi - Jóhannesarpassía Bachs
Margrét Vilborg Tryggvadóttir – Reykjavík barnanna
Kári Kárason Þormar – Brilliant Barrokk
Les Fréres Stefson ehf. – Snælda
Brynja Pétursdóttir – Street dans Einvígið
Brassband Reykjavíkur – Brassband Reykjavíkur250.000 kr. Emilía Rós Sigfúsdóttir – 10 ára afmælis- og útgáfutónl. Elektra Ensemble
200.000 kr. Ragnheiður Árnadóttir – Mógil tónleikar
158.000 kr. Lilja María Ásmundsdóttir – Tónleikar á Myrkum músíkdögum 2019
Samþykkt.Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð þakkar faghópi vegna styrkveitinga á sviði menningarmála fyrir árið 2019 fyrir fagleg og vel unnin störf. Alls var 161 umsókn til umfjöllunar hjá faghópnum og verkefnið því umfangsmikið en að þessu sinni er lagt til að veittir verði 75 styrkir. Öllum þeim sem sóttu um er þakkaður áhugi á því að auðga menningarlíf Reykjavíkur.
Formaður ráðgefandi faghóps um styrki ráðsins og Sif Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála, tóku sæti á fundinum undir þessum lið.
Gunnlaugur Bragi Björnsson vék af fundinum við meðferð málsins.
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð leggur fram svohljóðandi bókun:Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð gerir fyrirvara við samþykkt úthlutunar til Reykjavik Fashion Festival, með hliðsjón af því að hátíðin fékk styrk í fyrra en fór ekki fram. Úthlutun til verkefnisins er frestað meðan aflað er frekari gagna.
Fylgigögn
-
Lögð fram skipan í ráðgefandi faghóp um styrki úr borgarsjóði á sviði menningarmála 2019 sem samþykkt var á fundi ráðsins þann 10. september 2018. Trúnaður ríkti um skipanina sem nú er aflétt í kjölfar úthlutunar styrkja árið 2019. RMF18080005
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf leiklistarhátíðarinnar Lókal dags. 3. janúar 2019. RMF18080005
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Vinstri grænna í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihluta í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði telja ekki ástæðu til að gera breytingar á því fyrirkomulagi sem komið hefur verið á að faghópur geri tillögur um úthlutun til menningar- og listtengdra verkefna sem ráðið svo samþykkir. Okkar mat er að það fyrirkomulag hafi reynst vel.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs á umsókn Reykjavíkurborgar um að halda European Film Awards 2020. RMF18120001
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á dagskrá Vetrarhátíðar 2019, sem fram fer 7.-10. febrúar nk. RMF18090002
Guðmundur Birgir Halldórsson, formaður stjórnar Vetrarhátíðar 2019, og Sif Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á Iceland Airwaves 2018. RMF16080010
Ísleifur Þórhallson, framkvæmdastjóri Senu Live, og Sif Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið klukkan 15:49
Pawel Bartoszek Hjálmar Sveinsson
Sabine Leskopf