Mannréttindaráð
Ár 2025, fimmtudaginn 8. maí var haldinn 4. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.04. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Guðný Maja Riba, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Björn Gíslason og Friðjón R. Friðjónsson. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar samráðshóps um málefni fatlaðs fólks: Björgvin Björgvinsson, Lilja Sveinsdóttir og Inga Guðrún Kristjánsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Ingólfur Már Magnússon, Sigurbjörg H. Sigurgeirsdóttir og Rúnar Björn Herrera. Einnig sátu fundinn eftirfarandi embættismenn og starfsfólk: Valgerður Jónsdóttir, Aðalbjörg Traustadóttir og Bragi Bergsson sat fundinn með rafrænum hætti.
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 9. apríl og 6. maí 2025, um að Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns taki sæti í mannréttindaráði í stað Magnúsar Davíðs Norðdahl. Jafnframt að Tinna Helgadóttir taki sæti sem varamaður í stað Oktavíu Hrundar Guðrúnar Jóns. MSS25020083
Fylgigögn
-
Fram fer kynning Ríkisendurskoðunar á skýrslu dags. febrúar 2025, um þjónustu við fatlað fólk skv. lögum nr. 38/2018. MSS25030094
Guðmundur Björgvin Helgason, Jakob Guðmundur Rúnarsson og Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráðið þakkar fyrir góða kynningu á skýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlað fólk. Brýnt er að kostnaðarútgjöld á milli ríkis og sveitarfélaga séu útkljáð til að tryggja varanlega fjármögnun NPA samninga og að þjónustusamningar NPA séu betur skýrðir. Einnig er mikilvægt að kynningarefni sé skýrt og til staðar sem og virkt ytra og innra eftirlit sé eflt.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á veiði fatlaðra barna í Elliðaám. MSS25040182
Ingi Þór Hafsteinsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Þökkum fyrir góða kynningu og tökum undir mikilvægi þess að bjóða upp á fjölbreytt námskeið fyrir alla í Reykjavík. Gaman er að sjá hversu vel er staðið að verkefninu sem er til fyrirmyndar.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um bílastæði hreyfihamlaðra í bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar og verklag bílastæðavarða. MSS24020046
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráðið telur afar brýnt að finna varanlega lausn á verklagi fyrir notendur P-stæða í bílakjallara Ráðhússins. Ólíðandi er að fólk með P-merki geti ekki nýtt sér bílastæðahús borgarinnar með ásættanlegum hætti án þess að meira sé lagt á notendur þeirra umfram aðra notendur. Mannréttindaráð óskar eftir að lögð verði fram áætlun um breytingar við fyrsta tækifæri.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Brýnt er að fundin sé varanleg lausn við þessum vanda í samstarfi við notendur P-stæða til þess að stæðin nýtast þeim sem þurfa á P-stæðum á að halda. Það er mannanna verk að skapa kerfi sem er mannvænt og aðgengilegt og hér er ljóst að endurhugsa þarf hvernig við miðlum upplýsingum um laus P-stæði í bílastæðahúsum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir með fulltrúum meirihlutaflokkanna og Framsóknarflokksins að brýnt sé að finna lausn fyrir notendur P-stæða í bílastæðahúsum borgarinnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins benda á að öll tækni er til staðar til að leysa vandann, vilji og fjármagn er allt sem þarf.
Samþykkt að senda bókanir til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Innviðaráðuneytis dags. 9. apríl 2025, um framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2025-2026. MSS25040174
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga samráðshóps um málefni fatlaðs fólks dags. 6. maí 2025, um verðlaunahafa aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2024. Trúnaður ríkir um þennan lið og fært í trúnaðarbók þar til eftir afhendingu verðlauna þann 16. maí nk.
Samþykkt. MSS25030095 -
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 30. apríl 2025, um niðurstöður rafrænnar könnunar um menningar- og kynþáttafordóma og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkur og stöðu verkefnis. MSS25010076
Sema Erla Serdaroglu tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 2. maí 2025, um tíma- og verkáætlun kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar 2025 og stöðu verkefnis. MSS23010175
Sigríður Finnbogadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 14. apríl 2025, þar sem óskað er umsagnar mannréttindaráðs um drög að reglum Reykjavíkurborgar um styrki. Samþykkt að fela formanni í samráði við fulltrúa ráðsins að gera umsögn fyrir 20. maí nk. ÞON24080006
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga valnefndar dags. 5. maí 2025, um mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2025. Trúnaður ríkir um þennan lið og fært í trúnaðarbók þar til eftir afhendingu verðlauna þann 16. maí nk.
Samþykkt. MSS25030092
Fundi slitið kl.16.04
Sabine Leskopf Guðný Maja Riba
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Magnea Gná Jóhannsdóttir Björn Gíslason
Friðjón R. Friðjónsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 8. maí 2025