Mannréttindaráð - Fundur nr. 33

Mannréttindaráð - Fundur nr. 33

Mannréttindaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 30. apríl var haldinn 33. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Tjarnarbúð og hófst kl. 13.35. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Birkir Ingibjartsson, Magnús Davíð Norðdahl, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Fanný Gunnarsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Helga Margrét Marzellíusardóttir. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Anna Kristinsdóttir. Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram tilnefning valnefndar mannréttindaverðlauna, ásamt rökstuðningi dags. 28. apríl 2026, um verðlaunahafa mannréttindaverðlauna Reykjavíkur 2026. Tímabundinn trúnaður ríkir um þennan lið þar til eftir afhendingu verðlauna þann 11. maí nk.
    Samþykkt. MSS26020057

  2. Lagðar fram umsagnir mannréttindaskrifstofu dags. 15. apríl sl. og mannauðs- og starfsumhverfissviðs dags. 27. apríl sl., um aðgerðir í úttekt á kynþátta- og menningarfordómum og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkurborgar, sbr. samþykkt mannréttindaráðs frá 26. febrúar 2026.  
    Samþykkt að vísa aðgerðum til útfærslu mannréttindaskrifstofu og mannauðs- og starfsumhverfissviðs. MSS25010076

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirliggjandi vinna við úttekt á kynþátta- og menningarfordómum og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkurborgar er mikilvægur vegvísir fyrir nauðsynlegar úrbætur í starfsumhverfi borgarinnar. Úttektin sýnir áberandi þörf á aðgerðum svo starfsfólk upplifi sig öruggt og geti tilkynnt kynþátta- og menningarfordóma. Efla þarf fræðslu til að uppræta fordóma og styðja þarf enn frekar við innleiðingu, eftirfylgni og úttektir á þeim stefnum og áætlanagerðum borgarinnar sem tengjast kynþátta- og menningarfordómum. Til grundvallar þeirri vinnu þarf áframhaldandi og reglulegar kannanir til að tryggja bæði gagnasöfnun og varnir gegn fordómum. Mannréttindaráð samþykkir að vísa tillögum 1. – 3. til mannréttindaskrifstofu til frekari útfærslu. Þær verði hluti af aðgerðaráætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum fyrir árin 2027 – 2030 sem byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, 13 . gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Aðgerðaráætlunin verður lögð fyrir borgarstjórn til samþykktar vorið 2027. Tillögum 4.- 7. verði vísað til mannauðs- og starfsumhverfissviðs til frekari útfærslu. Þá verði 8. tillögu vísað til mannréttindaskrifstofu og mannauðs- og starfsumhverfissviðs til frekari útfærslu.

    -    Kl. 14.30 taka sæti eftirtaldir fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Hallgrímur Eymundsson, Áslaug Inga Kristinsdóttir og Anna Kristín Jensdóttir. Eftirtalin starfsmaður: Valgerður Jónsdóttir.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning skrifstofu samskipta og viðburða á aðgengi að hátíðum og viðburðum í Reykjavík.

    Björg Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22100249

    -    Kl. 14.34 taka Katarzyna Kubiś og Hlynur Þór Agnarsson sæti á fundinum.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram tilnefning fulltrúa samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks í mannréttindaráði, ásamt rökstuðningi dags. 27. apríl 2026, um verðlaunahafa aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2025. Tímabundinn trúnaður ríkir um þennan lið þar til eftir afhendingu viðurkenningar þann 11. maí nk. 
    Samþykkt. MSS26030028

  5. Lögð fram tillaga fulltrúa ÖBÍ dags. 28. apríl 2026, um hækkun á hámarkskílómetrafjölda vegna endurgreiðslu aksturskostnaðar. Jafnframt er lögð fram afturköllun tillögu dags. 29. apríl 2026. MSS26040073

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa ÖBÍ dags. 27. apríl 2026:

    Fulltrúi ÖBÍ í mannréttindaráði óskar svara frá velferðarsviði um hvort persónuvernd sé nægjanlega tryggð í heimaþjónustu og búsetukerfi dala.care? þar sem hægt er að sjá fjölda skjólstæðinga inni í forritinu.

    Vísað til umsagnar velferðarsviðs. MSS26040072

    Fylgigögn

  7. Fram fer umræða um fræðslu fjölbreytileika fatlana í grunnskólum, að beiðni fulltrúa Viðreisnar. MSS26040076

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráð telur ljóst að skortur sé verulegur um fræðslu varðandi fatlanir og hvetur skóla- og frístundasvið til þess að setja af stað vinnu við að koma á fræðsluviku um fjölbreytileika fatlana í grunnskólum borgarinnar. Mætti leitast við að skoðað Viku 6 í því samræmi. Sem höfuðborg ættum við að vera leiðandi í málaflokknum og veita öðrum gott fordæmi en staðan er alvarleg á landsvísu og fatlanir ekki hluti af námsefni á neinu skólastigi að einhverju ráði í dag nema í sérnámi í fötlunum á háskólastigi og því mikilvægt að að stíga inn með virka fræðslu. Miðað við alþjóðleg viðmið mætti áætla að 10 til 20% Reykvíkinga beri einhverja fötlun en þar er helst átt við þroskahömlun, hreyfihömlun eða raskanir á einhverfurófi, og því um verulegan fjölda íbúa að ræða sem í dag fá sjálfir jafnvel enga fræðslu um tækifæri sín jafnt sem takmarkanir nema af mjög skornum skammti og jafnvel svo seint að það hefur áhrif á lífsgæði þeirra. Gott væri ef gætt væri að samráði við þá hópa er málið varða t.d. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, íþróttasamband fatlaðra, öryrkjabandalagið, einstök börn, blindrafélagið og önnur sambærileg samtök.

    Samþykkt að senda bókun til skóla- og frístundasviðs til upplýsingar.

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 16. apríl 2026, um samþykkt borgarstjórnar sama dag, á aðgerðaáætlun aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030. MSS22010199

    Fylgigögn

  9. Lagt fram svar menningar- og íþróttasviðs dags. 15. apríl 2026, við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands um atvinnutengt frítímastarf fyrir ungmenni með fötlun, sbr. 3. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 22. janúar 2026. MSS26010138

    Fylgigögn

  10. Samþykkt að taka á dagskrá til framlagningar svar skóla- og frístundasviðs dags. 29. apríl 2026, við fyrirspurn fulltrúa Þroskahjálpar um fjölda barna sem fá stuðningsþjónustu, sbr. 3. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 26. febrúar 2026. MSS26020099 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 15:25

Sabine Leskopf Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Magnús Davíð Norðdahl Birkir Ingibjartsson

Fanný Gunnarsdóttir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir

Helga Margrét Marzellíusardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerðar mannréttindaráðs - 30.042026