Mannréttindaráð - Fundur nr. 30

Mannréttindaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 12. mars var haldinn 30. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.04. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson og Björn Gíslason. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Katarzyna Kubiś, Hlynur Þór Agnarsson, Ingólfur Már Magnússon og Hallgrímur Eymundsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Ellen J. Calmon. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Anna Kristinsdóttir og Valgerður Jónsdóttir. Katrín Harpa Ásgeirsdóttir með rafrænum hætti. Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning skóla- og frístundasviðs um starfsemi farteymis. MSS26020089

    Svandís Egilsdóttir og Bára Birgisdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 13.12 tekur Sigurbjörg Helga Sigurbjörnsdóttir sæti á fundinum.

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráðið þakkar fyrir góða kynningu á starfsemi farteyma á vegum skóla- og frístundasviðs sem sinnir nemendum á grunnskólaaldri með fjölþættan vanda. Slík stoðþjónusta við skólasamfélagið vegna barna með hegðunarvanda sem valda röskun á skólastarfi er gífurlega mikilvæg, sérstaklega með tilliti til þess að geta brugðist við hratt og örugglega. Þá er þessi stuðningur ekki einungis mikilvægur fyrir skólastarfið heldur einnig við þau börn sem þarfnast aðstoðar til að geta átt í betri samskiptum. Þá telur ráðið mikilvægt að þjónustan sé samræmd á milli hverfa. En núna er ekki starfandi farteymi á Norðurmiðstöð en ráðið telur mjög brýnt að svo sé.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning umhverfis- og skipulagssviðs um Hlemm og næstu skref bættrar ásýndar, aðgengis og upplifunar. MSS22110236

    Rebekka Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 13.55 víkur Katrín Harpa Ásgeirsdóttir af fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.
    -    Kl. 14.07 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundinum og Þorvaldur Daníelsson tekur sæti. 
    -    Kl. 14.13 tekur Tinna Helgadóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti. 

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu og hnykkir á mikilvægi þess að algild hönnun sé höfð að leiðarljósi í allri hönnunarvinnu þar á meðal þegar kemur að útboðum varðandi einstaka þætti svo sem töskugeymslu, hjólahús og leikvelli. Þá leggur ráðið áherslu á að P-merktum stæðum verði fjölgað og tryggt verði að P-merktum stæðum verði komið fyrir nær mathöllinni.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf velferðarsviðs dags. 9. mars 2026, um stefnu í málaflokki fatlaðs fólks í samráðsgátt Reykjavíkurborgar. 
    Samþykkt að fela formanni mannréttindaráðs að vinna drög að umsögn, í samráði við fulltrúa ráðsins, sérstaklega fulltrúa samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks. VEL25090041

    Fylgigögn

  4. Lögð fram auglýsing um aðgengisviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2025. MSS26030028

    -    Kl. 14.31 víkja af fundinum fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Katarzyna Kubiś, Sigurbjörg Helga Sigurbjörnsdóttir, Hallgrímur Eymundsson, Hlynur Þór Agnarsson og Ingólfur Már Magnússon. Jafnframt víkur af fundinum eftirfarandi starfsmaður: Valgerður Jónsdóttir.

    Fylgigögn

  5. Kynningu fjármála- og áhættustýringarsviðs um félagslega sjálfbærni og mannréttindastefna í innkaupum Reykjavíkurborgar, er frestað. MSS25120058

  6. Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu dags. 10. mars 2026, um hlutfall kvenna og karla í ráðum, nefndum og stjórnum Reykjavíkurborgar. MSS22100102

    Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  7. Fram fer umræða um valnefnd vegna mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2026. 
    Samþykkt að fela mannréttindaskrifstofu að setja saman valnefnd vegna mannréttindaverðlauna. MSS26020057

  8. Lögð fram umsögn mannréttindaráðs dags. 11. febrúar 2026, um skýrslu um starfsemi vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í Reykjavík 1974 -1979, sbr. 5. lið fundargerðar um samþykkt mannréttindaráðs frá 5. febrúar 2026. MSS26010078

    Fylgigögn

Fundi slitið kl.15.07

Sabine Leskopf Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Ellen Jacqueline Calmon Tinna Helgadóttir

Þorvaldur Daníelsson Björn Gíslason

Friðjón R. Friðjónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 12. mars 2026