Mannréttindaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 5. mars var haldinn 29. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.04. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Guðný Maja Riba, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Friðjón R. Friðjónsson og Björn Gíslason. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar öldungaráðs: Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir, Jóhann Birgisson, Sigurður Á. Sigurðsson og Viðar Eggertsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Anna Kristinsdóttir og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir. Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning aðgengisfulltrúa Reykjavíkur um aðgengi og eldra fólk.
Bragi Bergsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26020056
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráðið þakkar fyrir góða kynningu á stöðu aðgengismála eldra fólks. Ljóst er að mikil framför hefur orðið hér á undanförnum árum en á sama tíma þarf að leggja áherslu á áframhaldandi og markvissa vinnu á þessu sviði. Sérstaklega er mikilvægt að huga að aðgengi í nærumhverfi eldra fólks, svo sem öruggum gönguleiðum, góðri lýsingu, bekkjum til áningar og að vetrarþjónusta sé tryggð þar sem þörfin er mest. Slíkir þættir skipta miklu máli fyrir sjálfstæði, öryggi og lífsgæði eldra fólks. Mannréttindaráðið fagnar jafnframt þeim verkefnum sem kynnt voru, meðal annars þróun gönguhringja við þjónustukjarna og öðrum aðgerðum sem miða að því að gera borgarrýmið aðgengilegt fyrir öll. Jafnframt er mikilvægt að tryggja að sjónarmið um aðgengi séu höfð til hliðsjónar strax á fyrstu stigum skipulags og framkvæmda, þannig að lausnir fyrir alla notendur verði eðlilegur hluti af hönnun og uppbyggingu borgarrýmis. Mikilvægt er að halda áfram að þróa slíkar lausnir í samráði við notendur og hagaðila.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning velferðarsviðs um bækling um þjónustu fyrir eldra fólk. VEL24030022
- Kl.14.19 víkja af fundinum fulltrúar öldungaráðs: Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir, Jóhann Birgisson og Viðar Eggertsson. Jafnframt víkur af fundinum eftirfarandi starfsmaður: Þórhildur Guðrún Egilsdóttir
- Kl.14.30 taka sæti á fundinum áheyrnarfulltrúar ofbeldisvarnarmála: Linda Dröfn Gunnarsdóttir. I. Jenný Ingudóttir og Ásmundur Rúnar Gylfason með rafrænum hætti. Eftirfarandi starfsmaður tekur sæti á fundinum: Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu dags. 23. febrúar 2026, um tillögur starfshóps um heimilisofbeldi og fólk með fjölþættan vanda sbr. aðgerð nr. 30 í aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2025 - 2028.
Vísað til umsagnar velferðarsviðs.
Valgerður Jónsdóttir, Erna Dís Gunnarsdóttir og Birna Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24060082Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráðið þakkar fyrir kynningu á vinnu starfshóps samkvæmt aðgerð nr. 30 í aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2025–2028 og vísar skýrslu ásamt tillögum til umsagnar velferðarsviðs. Ljóst er að konur og kvár með fjölþættan vanda, sérstaklega þau sem eru heimilislaus eða glíma við vímuefnavanda, eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu gagnvart ofbeldi. Ráðið tekur undir mikilvægi tillagna starfshópsins, þar á meðal um sérstaka neyðaríbúð, formfest samstarf VoR-teymis og lögreglu, bætt upplýsingaflæði með markvissari gagnaöflun byggða á ETHOS-skilgreiningu. Slíkar aðgerðir eru mikilvægar til að tryggja öryggi, mannlega reisn og raunverulegt aðgengi að vernd og þjónustu fyrir þennan hóp.Fylgigögn
-
Fram fer kynning á helstu niðurstöðum úttektar á verkefninu Saman gegn ofbeldi 2015 - 2025.
Kristín Hjálmarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22110176
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Nauðsynlegt er að tryggja sjálfbærni, skýra framtíðarsýn og áframhaldandi traust í þróun verkefnisins Saman gegn ofbeldi. Ljóst er að verkefnið hefur verið afar farsælt og skilað verulegum árangri í baráttunni gegn ofbeldi sem samhæfður samráðsvettvangur sem hefur haft raunveruleg áhrif á verklag, þjónustu og stefnumótun. Áhætta getur þó skapast ef þekking og reynsla sem byggst hefur upp innan verkefnisins glatast, til dæmis við breytingar á mannafla eða skipulagi. Því er mikilvægt að tryggja grunninnviði verkefnisins, þar á meðal verkefnisstjórn og samráðsvettvang, svo samfella, eftirfylgni og áframhaldandi þróun verkefnisins haldist. Mannréttindaráð leggur ríka áherslu á að þessi vinna verði tryggð til framtíðar.
- Kl. 15.40 víkur Sigurður Á. Sigurðsson af fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu dags. 2. mars 2026, um niðurstöður vinnuhópa á málþinginu Saman gegn ofbeldi 10 ára. MSS22110176
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um skólaakstur, sbr. 6. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 5. febrúar 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn Kvennaathvarfsins dags. 11. febrúar 2026, um tillöguna.
Samþykkt og vísað til meðferðar velferðarráðs. MSS25110132Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráðið samþykkir að vísa þessari tillögu til meðferðar Velferðarráðs og tekur undir mikilvægi þess að tryggja þessum börnum viðeigandi námsumhverfi. Ljóst er að akstursþjónustan þarf ávallt að vera í samráði við sérfræðinga Kvennaathvarfsins þar sem aðstæður og þörf barna geta verið afar mismunandi.
Fylgigögn
Fundi slitið kl.16.02
Sabine Leskopf Guðný Maja Riba
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
Magnea Gná Jóhannsdóttir Friðjón R. Friðjónsson
Björn Gíslason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 5. mars 2026