Mannréttindaráð - Fundur nr. 28

Mannréttindaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 26. febrúar var haldinn 28. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.03. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Ellen J. Calmon, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Einar Sveinbjörn Guðmundsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Björn Gíslason. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Áslaug Inga Kristinsdóttir og Katarzyna Kubiś. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Helga Margrét Marzellíusardóttir. Fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Lilja Sveinsdóttir, Ingólfur Már Magnússon og og Hallgrímur Eymundsson. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Valgerður Jónsdóttir og Bryndís Snæbjörnsdóttir. Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning velferðarsviðs á drögum að stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fatlaðs fólks 2026 – 2036.

    -    Kl. 13.45 víkur Einar Sveinbjörn Guðmundsson af fundinum og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns tekur sæti.

    Arne Friðrik Karlsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. VEL25090041

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráðið þakkar fyrir kynningu á umfangsmikilli vinnu við endurskoðun á stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fatlaðs fólks 2026 – 2036 og tekur undir að nauðsynlegt er að borgin setji sér nýja framtíðarsýn í málaflokknum. Ráðið mun taka virkan þátt í samráðsferlinu.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa ÖBÍ dags. 18. febrúar 2026, um hækkun á útlögðum kostnaði starfsfólks í stoðþjónustu.

    Lagt er til að mannréttindaráð samþykki að óska eftir við velferðarráð að skoða leiðir til að hækka upphæð endurgreiðslu til starfsfólks í stoðþjónustu velferðarsviðs. Borgin hefur boðið starfsmönnum sem sinna stoðþjónustu upp á möguleika á endurgreiðslu fyrir útlögðum kostnaði vegna veitinga og afþreyingu á vinnutíma að hámarki upphæð 5.110 krónur á mánuði. Upphæðin hefur ekki hækkað í takt við verðlagsþróun undanfarinna ára. Óskað er eftir að kannað verði hvort hækka megi upphæðina í 8000 krónur.

    Samþykkt og vísað til meðferðar velferðarráðs. MSS26020088

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráðið tekur undir að það sé mikilvægur þáttur fyrir lífsgæði fatlaðs fólks að starfsfólkið í stoðþjónustu geti tekið þátt í viðburðum sem þjónustuþegar þeirra sækja.

    Fylgigögn

  3. Fulltrúi Þroskahjálpar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftirfarandi upplýsinga frá skóla- og frístundasviði: Hvað fá mörg börn stuðningsþjónustu í grunnskólum Reykjavíkurborgar vegna fötlunar, þar með talið einhverfu og annarra greininga? Hvernig er hlutfallið milli barna af íslenskum og erlendum uppruna, sem eru að fá stuðning?

    Fyrirspurninni fylgir greinagerð. 
    Vísað til umsagnar skóla- og frístundasviðs. MSS26020099

    -    Kl. 14.11 víkja af fundinum fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Áslaug Inga Kristinsdóttir, Katarzyna Kubiś. Hallgrímur Eymundsson, Lilja Sveinsdóttir og Ingólfur Már Magnússon aftengjast fjarfundarbúnaði. Jafnframt víkur af fundinum eftirfarandi starfsfólk: Valgerður Jónsdóttir og Bryndís Snæbjörnsdóttir.

    -    Kl. 14.25 taka sæti á fundinum áheyrnarfulltrúar í málefnum innflytjenda og fólks með erlendan bakgrunn: Marion Poilvez og Milan Chang Gudjonsson. Eftirfarandi starfsmaður tekur sæti á fundinum: Íris Björk Kristjánsdóttir.

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á Úttekt á kynþátta- og menningarfordómum og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkurborgar, dags. 31. janúar 2026.

    Samþykkt að vísa aðgerðum í Úttekt á kynþátta- og menningarfordómum og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkurborgar, til umsagnar og kostnaðarmats til mannauðs- og starfsumhverfissviðs og mannréttindaskrifstofu.  

    Sema Erla Serdaroglu, Helga Bryndís Kristjánsdóttir og Kristín Salín Þórhallsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25010076 

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráðið þakkar fyrir greinargóða vinnu við Úttekt á kynþátta- og menningarfordómum og birtingarmyndum þeirra innan stofnana Reykjavíkurborgar. Úttektin sýnir áberandi þörf á aðgerðum til að styrkja starfsumhverfið svo starfsfólk upplifi sig öruggt og geti tilkynnt kynþátta- og menningarfordóma, efla þarf fræðslu til að uppræta fordóma og styðja þarf enn frekar við innleiðingu, eftirfylgni og úttektir þeirra stefna og áætlanagerða borgarinnar sem koma að kynþátta- og menningarfordómum. Til grundvallar þeirri vinnu þarf áframhaldandi, reglulegar kannanir til að tryggja bæði gagnasöfnun sbr. þróun og árangur sem og til að gæta vel að forvörnum. Mannréttindaráðið samþykkir að vísa aðgerðum í úttektinni til umsagnar og kostnaðarmats til mannauðs- og starfsumhverfissviðs og mannréttindaskrifstofu.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Eftir kynningu Semu Erlu Serdaroglu á Úttekt á kynþátta- og menningarfordómum innan stofnana Reykjavíkurborgar lýsa fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í ráðinu yfir miklum áhyggjum á stöðu málaflokkanna. Niðurstaðan er áfellisdómur og ljóst að mikillar vinnu er þörf á ferlum, efnislegum skilningi og framkvæmd.

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um aukna fræðslu og samræmdar upplýsingar, ásamt því að efla samstarf stofnana við grasrótarsamtök eins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna. MSS26020055 

  6. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Samtaka kvenna af erlendum uppruna, um að taka á dagskrá til umræðu stöðu á lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur sbr. 7. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 22. janúar 2026. MSS26010137 
    Samþykkt. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl.15.55

Sabine Leskopf Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Ellen Jacqueline Calmon

Magnea Gná Jóhannsdóttir Helga Margrét Marzellíusardóttir

Björn Gíslason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 26. febrúar 2026