Mannréttindaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 12. febrúar var haldinn 27. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.03. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Guðný Maja Riba, Magnús Davíð Norðdahl, Friðjón R. Friðjónsson og Björn Gíslason. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar öldungaráðs: Sigurður Ágúst Sigurðsson, Birna Sigurjónsdóttir, Jóhann Birgisson og Eva Kristín Hreinsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Magnea Gná Jóhannsdóttir. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Valgerður Jónsdóttir og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir. Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning Samtakana ´78 um hinsegin málefni og eldra fólk. MSS26020021
Sveinn Kjartansson og Þorvaldur Kristinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráð þakkar fyrir kynningu á grunnfræðslu í umönnun og þjónustu þar sem sérstaklega var fjallað um stöðu og reynslu eldri hinsegin einstaklinga í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Fræðslan undirstrikar að um fjölbreyttan hóp er að ræða sem hefur í mörgum tilvikum upplifað fordóma, sjúkdómavæðingu og ósýnileika, sem getur haft áhrif á traust til þjónustukerfa og vilja til að leita sér stuðnings. Slík reynsla getur aukið félagslega einangrun og haft neikvæð áhrif á lífsgæði og heilsu. Mannréttindaráð telur mikilvægt að þjónusta sé skipulögð á grundvelli mannréttinda, virðingar og raunverulegrar þekkingar á fjölbreyttum þörfum notenda. Ráðið minnir á að samkvæmt lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar nr. 85/2018 er hvers kyns mismunun í heilbrigðis- og félagsþjónustu óheimil, meðal annars á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar eða kyntjáningar. Ráðið leggur því áherslu á áframhaldandi fræðslu og markvissar aðgerðir sem stuðla að öruggu, aðgengilegu og mannúðlegu þjónustuumhverfi fyrir öll.
Fylgigögn
-
Lagðar fram umsagnarbeiðnir Skjóls og Eirar dags. 6. febrúar 2026, til öldungaráðs vegna styrkumsókna í Framkvæmdasjóð aldraðra 2026. MSS26020038
Fulltrúar öldungaráðs leggja fram svohljóðandi bókun:
Öldungaráð ítrekar eftirfarandi bókun sbr. 3. lið fundargerðar öldungaráðs frá 15. janúar 2025: Öldungaráð gagnrýnir það verklag að veita umsagnir við styrkumsóknir í Framkvæmdarsjóð aldraðra. Öldungaráð hefur ekki forsendur til að meta umfang þeirra verkefna sem verið er að sækja um styrk fyrir né kostnaðaráætlun. Ársreikningar sjálfseignastofnana þarf ekki að birta og því ógerningur fyrir ráðsmenn að meta fjárhagslega skiptingu þeirra og efnahagsreikning. Öll verkefnin snúa að viðhaldi og nýfjárfestingu í umgjörð rekstrar en ekki þróun þjónustu við eldra fólk, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um málefni aldraðra nr.1999/125, og það finnst öldungaráði miður. Öldungaráð ítrekar erindi sitt dags. 14. febrúar 2024 til stjórnar framkvæmdarsjóðs aldraðra þar sem kallað er eftir að verklag um veitingu umsagna í Framkvæmdarsjóð aldraðra sé endurskoðað, svo ráðið geti uppfyllt lagaskyldu sína við veitingu umsagna.
Samþykkt að senda bókun öldungaráðs til stjórnar framkvæmdarsjóðs aldraðra og heilbrigðisráðherra.
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 9. febrúar 2026, um frávísun umhverfis- og skipulagsráðs þann 28. janúar sl., á tillögu U3A Reykjavík og Samtaka aldraðra um almenningsbekki. MSS25100004
Fulltrúi U3A Reykjavík leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar U3A Reykjavík í öldungaráði harma afgreiðslu meirihluta í umhverfis- og skipulagsráði á tillögu U3A Reykjavík og Samtaka aldraðra, um heildarstefnu í almenningsbekkjum og þ.m.t. minningarbekkjum í borgarlandinu. Það er fráleitt að halda fram að slík stefna sé til staðar, og allra síst hvað varðar minningarbekki. Þegar hún verður loks til, þá á vissulega að gera hana vel sýnilega og aðgengilega öllum borgarbúum og gefa þeim tækifæri til að koma á framfæri óskum sínum, sem síðan verði af fremsta megni og einlægni reynt að koma á móts við. Við tökum undir báðar bókanir minnihluta vegna þessa og hvetjum borgaryfirvöld til að vinna heildarskipulag um almenningsbekki og gera minningabekki að hluta þess skipulags með skýrum reglum og verkferlum fyrir borgarbúa.
Samþykkt að senda bókun U3A Reykjavík til umhverfis-og skipulagsráðs.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs dags. 14. janúar 2026, við fyrirspurn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni um afslátt af fasteignasköttum/gjöldum, sbr. 5. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 8. janúar 2026. MSS26010065
Fylgigögn
Fundi slitið kl.14.30
Sabine Leskopf Guðný Maja Riba
Magnús Davíð Norðdahl Magnea Gná Jóhannsdóttir
Friðjón R. Friðjónsson Björn Gíslason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 12. febrúar 2026