Mannréttindaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 5. febrúar var haldinn 26. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.04. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Guðný Maja Riba, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson og Björn Gíslason. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Áslaug Inga Kristinsdóttir, Lilja Sveinsdóttir og Hallgrímur Eymundsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks: Ingólfur Már Magnússon. Áheyrnarfulltrúar ofbeldisvarnamála: Drífa Snædal og Ásmundur Rúnar Gylfason. Einnig sat fundinn eftirfarandi starfsfólk: Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir, Bragi Bergsson, Valgerður Jónsdóttir og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir með rafrænum hætti. Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning um Samantekt úr íslenskum rannsóknum á ofbeldi gegn fötluðu fólki.
- Kl. 13.08 tekur Katarzyna Kubiś sæti á fundinum.
- Kl. 13.12 tekur Linda Dröfn Gunnarsdóttir sæti á fundinum.Hrafnhildur Snæfríður Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26010130
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráð þakkar fyrir greinargóða kynningu á íslenskum rannsóknum um fötlun, heilsu og ofbeldi gegn fötluðu fólki. Kynningin sýnir með ótvíræðum hætti að fatlað fólk er mun líklegra til að verða fyrir margs konar ofbeldi og að stuðningur á forsendum einstaklingsins er víða ábótavant. Hún undirstrikar jafnframt mikilvægi slíkra rannsókna og þess að þekking þeirra nýtist innan þjónustu og starfsemi borgarinnar til að tryggja að starfsfólk sé meðvitað um samverkandi áhættuþætti sem hafa áhrif á stöðu þessa hóps. Rannsóknirnar sýna að andlegt ofbeldi er algengasta birtingarmyndin, en einnig er um að ræða líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Ofbeldið tengist oft jaðarsettri stöðu, þjónustutengslum og skýru valdaójafnvægi milli þolenda og gerenda, þar sem gerendur eru gjarnan nánir aðilar, svo sem makar, fjölskyldumeðlimir eða þjónustuveitendur. Sérstaklega viðkvæmir hópar eru meðal annars fólk með þroskahömlun, geðrænan vanda eða skerta tjáningu. Kynningin bendir einnig á að mál séu síður tilkynnt eða kærð og að vanþekking, staðalmyndir og fordómar grafi undan trúverðugleika frásagna fatlaðs fólks. Mannréttindaráð telur niðurstöðurnar undirstrika brýna þörf fyrir bætt aðgengi að vernd, sérhæfðum stuðningi og mannréttindamiðaðri nálgun í allri þjónustu borgarinnar.
Fylgigögn
-
Kynningu ÖBÍ réttindasamtaka á Nauðung, þvingun og ofbeldi í íbúðakjörnum fatlað fólks, er frestað. MSS26010130
-
Fram fer kynning Réttindagæslu fatlaðs fólks, um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
- Kl. 14.08 víkur Drífa Snædal af fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.
Eiríkur Smith tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS26010130
Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Mannréttindaráð þakkar fyrir kynningu á ofbeldi gegn fötluðu fólki í ljósi samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD). Kynningin undirstrikar að ofbeldi gegn fötluðu fólki er mannréttindabrot sem snertir grundvallarréttindi, þar á meðal rétt til öryggis, sjálfræðis, jafnræðis og verndar gegn vanvirðandi meðferð. Ráðið tekur undir að ofbeldi birtist ekki eingöngu í einstökum atvikum heldur einnig í kerfislægum þáttum, svo sem valdaójafnvægi, skorti á stuðningi við ákvarðanatöku, óaðgengilegum kvörtunarleiðum og veikri réttarvernd. Í ljósi 16. gr. CRPD ber stjórnvöldum skylda til að fyrirbyggja ofbeldi, vernda fatlað fólk og tryggja raunhæf úrræði og réttarbætur. Mannréttindaráð áréttar mikilvægi mannréttindamiðaðrar framkvæmdar í allri þjónustu borgarinnar, þar sem sjálfræði, þátttaka og virk rödd fatlaðs fólks eru tryggð sem lykilforsenda forvarna gegn ofbeldi.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning mannréttindaskrifstofu á fjölda fatlaðra gerenda og brotaþola í útköllum Saman gegn ofbeldi. MSS22110176
- Kl. 15.00 víkja af fundi eftirfarandi fulltrúar samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks og áheyrnarfulltrúar ofbeldisvarnarmála ásamt starfsfólki: Áslaug Inga Kristinsdóttir, Lilja Sveinsdóttir, Katarzyna Kubiś og Hallgrímur Eymundsson. Ingólfur Már Magnússon og Ásmundur Rúnar Gylfason aftengjast fjarfundarbúnaði. Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir aftengist fjarfundarbúnaði.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags. 26. janúar 2026, þar sem óskað er umsagnar mannréttindaráðs um skýrslu nefndar um heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins 1974 -1979.
Samþykkt að fela formanni mannréttindaráðs að gera drög að umsögn, í samráði við fulltrúa ráðsins. MSS26010078
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um skólaakstur í Kvennaathvarfið, sbr. 10. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 27. nóvember 2025.
Samþykkt að óska umsagnar Kvennaathvarfsins um tillöguna. MSS25110132Fylgigögn
-
Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs dags. 26. janúar 2026, um fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um innkaup Reykjavíkurborgar, sbr. 3. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 11. desember 2025. MSS25120057
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir svarið. Fulltrúinn vekur athygli á því að ekki er minnst á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Betur færi á því að vísa skýrt til stefnunnar þannig að skýrt sé hvaða stefnur borgarinnar þurfi að huga að í innkaupum borgarinnar. Beðið er eftir frekari kynningu á innkaupum borgarinnar.
Fylgigögn
Fundi slitið kl.15.31
Sabine Leskopf Guðný Maja Riba
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Magnea Gná Jóhannsdóttir Friðjón R. Friðjónsson
Björn Gíslason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 5. febrúar 2026