Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð - Fundur nr. 43

Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð

Ár 2021, fimmtudaginn 12. ágúst var haldinn 43. fundur, mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í fjarfundi í Ráðhúsi og hófst kl. 13.07. Fundinn sátu: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Ellen J. Calmon, Diljá Ámundadóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Örn Þórðarson og Daníel Örn Arnarsson. Einnig sat fundinn Anna Kristinsdóttir og Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 12. ágúst 2021, um samþykkt borgarstjórnar á tillögu um heimildir til frávika frá skilyrðum sveitarstjórnarlaga vegna neyðarástands í sveitarfélagi m.a. vegna notkun fjarfundabúnaðar, ásamt fylgiskjölum. R18060129

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 23. júlí 2021, þar sem samþykkt var á fundi borgarstjórnar þann 22. júlí s.l., að Aron Leví Beck taki sæti í mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði í stað Skúla Þórs Helgasonar. R18060083

    Fylgigögn

  3. Lögð fram greinargerð Móðurmáls – Samtaka um tvítyngi, vegna styrks mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs til verkefnisins Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. R21010126

    -    Kl. 13.22 tekur Aron Leví Beck sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði.

  4. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 3. ágúst 2021, um umsagnarbeiðni um tillögu stýrihóps um innleiðingu íbúaráða. R19100342

    Samþykkt að fela Diljá Ámundadóttur að gera drög að umsögn mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs í takt við umræðu fundarins til samþykktar á næsta fundi ráðsins þann 26. ágúst 2021. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir að rétt sé að það tekur tíma að þróa starf íbúaráðanna bæði innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar og meðal íbúa í hverfum. Margar af tillögum stýrihópsins eru ágætar. Stýrihópurinn leggur til að íbúaráði Miðborgar og Hlíða verði skipt í tvö íbúaráð. Sama ætti að gilda um Breiðholtið sem er stórt hverfi, eiginlega þrjú hverfi. Þessi breyting ætti að gerast strax og prófa hana út kjörtímabilið og má þá endurskoða hana við upphaf næsta tímabils. Vandi íbúaráðanna er hversu pólitísk þau eru. Meirihlutinn í þeim, hinn pólitíski yfirskyggir án efa oft skoðanir minnihluta og borgarbúa. Meirihlutinn hefur oft sínu fram í krafti valds.  Hugsa þarf íbúaráðin sem rödd borgarbúa og þurfa ráðin að hlusta á íbúana og taka mál inn á fundina sem óskað er eftir. Gott er að ráðin fái aukna ábyrgð við mótun nærþjónustu. Íbúaráð ættu að  taka afstöðu til flestra stærri mála sem hverfin snerta og má ímynda sér að meirihluti íbúaráðs hafi endanlegt úrslitavald í sumum málum. Ekki ætti að setja íbúaráðum stífar og ítarlegar reglur. Íbúaráðin eru nefnd sem samskiptaleið í drögum um lýðræðisstefnu þannig að það er mikilvægt að þau virki sem slík.

    Sanna Magdalena Mörtudóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs dags. 1. júlí 2021, um undirbúning frumvarps að fjárhagsáætlun fyrir árið 2022 og fimm ára áætlun 2022 – 2026, ásamt fylgiskjölum. R21010179

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun

    Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar er lögð fram fyrir árin 2022 -2026. Hér er vissulega ekki um að ræða fjárfestingaráætlun, sem kemur seinna. Fulltrúi Flokks fólksins vill samt rifja upp eftirfarandi reglu sem lýtur að ábyrgð sviðsstjóra eins og segir „að borgarstjórn ákveður heildarskiptingu fjármuna út frá heildrænni forgangsröðun, fagráðin ákveða forgangsröðun hvert á sínu sviði og sviðsstjórar hafa ákvörðunarvald og bera ábyrgð á að reksturinn sé innan fjárheimilda og í samræmi við stefnu og forgangsröðun fagráðs“.  Fulltrúi Flokks fólksins vill sérstaklega rýna í tölur þjónustu- og nýsköpunarsviðs í fjárfestingaráætlun og þá alveg niður á kostnaðarstaði en sviðið hefur fengið og fær næsta ár gríðarmikið fé til ráðstöfunar eða 10 milljarða. Fulltrúi Flokks fólksins hefur gagnrýnt meðhöndlun þess fjármagns fram til þessa og gert ítrekaðar athugasemdir við hvernig fjármagni er varið. Stundum er talað um einn kostnaðarstað og einn gjaldlykil en það er án efa um fleiri gjaldalykla eða kostnaðarstaði að ræða sem almenningur er ekki meðvitaður upp jafnvel þótt bókhald sé opið.  Ýmislegt er hægt að færa undir lið eins og fjárfestingu. Þess vegna er mikilvægt að hafa gott eftirlit með þeim sem ber ábyrgðina. Engin er að mótmæla því að stafræn þróun þarf að eiga sér stað svo það sé skýrt.

    Sigurður Páll Óskarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á drögum að lýðræðisstefnu Reykjavíkurborgar 2021 – 2030. R18010207

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Margt í þessari stefnu er nákvæmlega það sem við viljum heyra s.s. að hafa vandaðar upplýsingar, víðtæka þátttöku borgara og samtal og samráð en tvíhliða samráð hefur einmitt verið Akkilesarhæll þessa meirihluta að mati fulltrúa Flokks fólksins. Eldar hafa logað  víða um borgina vegna samráðsleysis. Nefna má Skerjafjörðinn, Sjómannareitinn, Miðbæinn og fjölmargt fleira. Íbúaráðin eru nefnd sem samskiptaleið en borgarbúum hefur gengið misvel að koma málum sínum að eða fá áheyrn íbúaráða. Ráðin eru of pólitísk þar sem meirihlutinn ræður kannski oft förinni? Mörgum finnst einnig hin ýmsu önnur ráð sem nefnd eru í stefnunni ekki berjast nægjanlega fyrir hagsmunum þeirra hópa sem þau eiga að standa vörð um. Þar ræður pólitíkin ferð umfram hagsmuni fólksins? Traust á borgarstjórn sem er afar lítið endurspeglar þetta. Stefnan eins og hún er lögð upp er kannski meira draumsýn ekki nema tekið verði rækilega til hendinni. Lýðræði þarf verulega að færa á hærra plan þannig að hætt verði alfarið að pukrast með hvort heldur skýrslur eða úttektir. Komið er inn á mannauðsmál á stefnunni. Þau þarf að skoða rækilega á t.d.  á þjónustu- og nýsköpunarsviði. Þar hefur fólk verið rekið umvörpum undanfarin ár á sama tíma og nýtt starfsfólk oft með sömu menntun,  ráðið inn.

    Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir og Skúli Þór Helgason taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram svar forsætisráðuneytis dags. 24. júní 2021, við erindi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs dags. 3. maí s.l.,  vegna reglna sem ganga í berhögg við lög nr. 80/2019 um kynrænt sjálfræði. Jafnframt eru lögð fram til samþykktar drög að svari mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs til forsætisráðuneytis dags. 10. ágúst 2021. R21050037
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf menningar – og ferðamálasviðs dags. 5. ágúst 2021, um umsagnarbeiðni um Menningarstefnu Reykjavíkurborgar 2021 – 2030. Jafnframt eru lögð fram drög að umsögn mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs um stefnuna dags. 10. ágúst 2021. R21080014 
    Samþykkt að fela starfsmanni mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs að taka saman athugasemdir fulltrúa fyrir næsta fundi ráðsins þann 26. ágúst n.k. 

    Fylgigögn

  9. Lögð fram tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að framlögð mál fulltrúans verði birt á vef, sbr. 75. lið fundargerðar frá fundi borgarráðs 24. júní 2021. R21060246 
    Samþykkt að vísa tillögunni frá, með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata, gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Flokks fólksins og Sjálfstæðisflokksins. 
    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins er með skýra beiðni en hún er að fá yfirlit yfir öll mál Flokks fólksins sem lögð hafa verið fram í mannréttinda- nýsköpunar- og lýðræðisráði. Beiðnin lýtur að tillögum og fyrirspurnum. Fyrir þessu er fordæmi, afhent hefur nú þegar verið yfirlit yfir mál Flokks fólksins sem lögð hafa verið fram í borgarráði. Fulltrúi Flokks fólksins vill fá sambærilegt yfirlit frá mannréttindaráði og öðrum ráðum sem Flokkurinn situr í. Þegar yfirlitið liggur fyrir óskar fulltrúi Flokks fólksins hefur að umrætt yfirlit verði sett inn á heimasvæði flokksins sem er á vef borgarinnar þar sem aðrar upplýsingar um fulltrúa Flokks fólksins eru. Þetta er einföld og sanngjörn beiðni og hugsuð til að auðvelda borgarbúum aðgengi að vinnu flokksins í borgarstjórn þetta kjörtímabil. Eins og staðan er nú hafa borgarbúar ekki auðveldan aðgang að málum minnihlutaflokkanna nema að þræða sig í gegnum fundargerðir sem er tyrfin leið og tafsöm enda eru fundargerðir iðulega langar. Ekki er séð að nein haldbær rök séu fyrir að vísa þessari tillögu frá eins og hér er gert. Fulltrúi Flokks fólksins sættir ekki við svör eins og að síðar meir, einhvern tíman, komi eitthvað annað kerfi sem á að hafa þessi mál aðgengileg. Minnt er á að aðeins eitt ár, tæpt, er eftir af þessu kjörtímabili. Þetta er fær leið sem hægt er að fara núna.

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Tillögunni er vísað frá vegna þess að það er þegar í farvegi að koma því við að skapa yfirlit yfir mál fulltrúa með þróun Gagnsjár Reykjavíkur.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Flokks fólksins:

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að tekin verði markvisst og oftar á dagskrá í mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði málefni barna, eldra fólks og öryrkja. Fulltrúi Flokks fólksins hefur átt sæti í ráðinu á þessu kjörtímabili og þykir þau mál sem þar hafa verið til umræðu oft ansi einsleit. Mannréttindi varða okkur öll og huga þarf að mannréttindum og lýðræði í öllum hópum. Huga má meira að fátæku fólki í tengslum við mannréttindi en fátækir er stækkandi hópur. Nefna má öryrkja sem þola mega miklar skerðingar og ná þeir iðulega ekki endum saman. Sveitarfélagi er ekki skylt að fylgja almannatryggingarlögum þegar kemur að skerðingum og getur því gert mikið til að bæta kjör þeirra með því að taka sjálfstæða ákvörðun í þeim efnum. Skoða þarf mannréttindaþáttinn hjá börnum sem glíma við röskun eða fötlun af einhverju tagi og dæmi eru um að sumum er gert að stunda nám þar sem þau eru ekki meðal jafningja vegna skorts á sértæku skólaúrræði. Ræða þarf mannréttindi í tengslum við þá sem eru  fastir á sjúkrahúsi vegna þess að þeir eiga ekki heimili eða skortur er á heimaþjónustu. Huga þarf einnig að betri þjónustu fyrir eldra fólk sem vill búa sem lengst heima. Síðast en ekki síst þarf að skoða mannréttindaþáttinn þegar kemur að sveigjanlegum vinnulokum. R21080072

    Frestað.

    -    Kl. 15.42 víkur Anna Kristinsdóttir af fundinum.
    -    Kl. 15.44 víkja Diljá Ámundadóttir og Kolbrún Baldursdóttir af fundinum.

Fundi slitið klukkan 15:45

Dóra Björt Guðjónsdóttir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
mnl_1208.pdf