Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð - Fundur nr. 24

Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð

Ár 2023, þriðjudagur 31. október var haldinn 24. fundur mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs. Fundurinn var aukafundur og haldinn í Ráðhúsi, Tjarnarbúð og hófst kl. 12.03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Magnús Davíð Norðdahl, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Þorvaldur Daníelsson, Ellen J. Calmon, Friðjón R. Friðjónsson, Trausti Breiðfjörð Magnússon og Helga Þórðardóttir. Einnig sat eftirfarandi starfsmaður fundinn: Anna Kristinsdóttir.
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 16. október 2023, þar sem óskað er umsagnar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs um skýrslu vöggustofunefndar á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins og tillögu nefndarinnar um frekari athuganir. Jafnframt er lögð fram umsögn mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs dags. 31. október 2023. MSS23090194
    Samþykkt. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl.12.09

Magnús Davíð Norðdahl Þorvaldur Daníelsson

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Ellen Jacqueline Calmon

Trausti Breiðfjörð Magnússon Friðjón R. Friðjónsson

Helga Þórðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 31. október 2023