Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð - Fundur nr. 19

Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð

Ár 2023, fimmtudaginn 8. júní var haldinn 19. fundur mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Tjarnarbúð og hófst kl. 13.03. Fundinn sátu Magnús Davíð Norðdahl, Sabine Leskopf, Þorvaldur Daníelsson, Trausti Breiðfjörð Magnússon, og Helga Þórðardóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Helga Margrét Marzellíusardóttir. Einnig sat eftirtalinn starfsmaður fundinn: Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir.

Guðný Bára Jónsdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram að nýju bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 5. júní 2023, um aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar í jafnréttis- og mannréttindamálum 2023-2026.,sbr. 1. lið fundargerðar ráðsins frá 11. maí 2023. MSS23010102
    Samþykkt.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ef þessari aðgerðaáætlun verður framfylgt er ljóst að hún er til bóta. Hins vegar minnir fulltrúi Sósíalista á að Reykjavíkurborg er ekki að starfa eftir ákvæði sem sett verður fram í henni. Það ákvæði hljóðar upp á að starfsfólk fái greidd jöfn laun og njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Mörgum störfum hjá borginni hefur verið útvistað til einkafyrirtækja sem greiða í mörgum tilfellum minna til starfsfólks en þeirra sem sinna sama starfi beint fyrir borgina. Ekki verður annað séð en að borgin brjóti hér gegn eigin markmiðum um launajafnrétti, þar sem kveðið er á um að fólk fái jafn mikið greitt fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Aðgerðaáætlun sem ekki er unnið eftir grefur undan sjálfri sér, sem er bagalegt fyrir Reykjavíkurborg. Jafnframt grefur slíkt undan trausti borgarbúa.
     

    Fylgigögn

  2. Lagt fram nýju bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 23. mars 2023, sbr. samþykkt borgarráðs frá 21. mars 2023 á samkomulagi um forgangsröðun og uppsetningu öryggismyndavéla, sbr. 6 lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 13. apríl 2023. Einnig er lögð fram umsögn persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar, dags. 11. maí 2023, og  umsögn mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 22. maí 2023. MSS23030024

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins er hlynntur notkun öryggismyndavéla til að tryggja öryggi borgaranna. Flokkur fólksins hefur viljað sjá slíkar myndavélar þar sem börn stunda nám og leik, t.d. á skilgreindum leiksvæðum barna. Vissulega koma myndavélar ekki í veg fyrir að glæpur sé framinn en myndavélar hafa ákveðinn fælingarmátt. Öryggismyndavélar auka almennt öryggistilfinningu fólks. Í umsögn mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu um samkomulag er lýtur að öryggismyndavélum í borginni segir: Það er mat mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu að samkomulagið um öryggismyndavélar samræmist mannréttindastefnunni en einungis ef að vel útfærðar og nákvæmar verklagsreglur fylgja því. Flokki fólksins líst vel á þær verklagsreglur sem mannréttinda- og lýðræðisskrifstofan hefur sett og treystir því að farið verði eftir þessu verklagi.
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram að nýju tillaga og umsögn valnefndar, dags 12. maí 2023, um verðlaunahafa Mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2023., sbr. 1. lið fundargerðar ráðsins frá 15. maí 2023. MSS23030124

    Fylgigögn

  4. Lagt fram svar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 20. maí 2023, við fyrirspurn Flokks fólksins um óafgreidd mál, sbr. 10 lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 9. febrúar 2023. MSS23020073

    Fylgigögn

  5. Lagt fram minnisblað velferðarsviðs, dags. 12. maí 2023, ásamt minnisblaði skóla- og frístundasviðs, dags. 5. júní 2023, um viðbrögð og aðgerðir vegna aukins ofbeldis meðal ungmenna. MSS23060025.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Um að ræða kynningu á aðgerðum skóla-og frístundasviðs og velferðarsviðs vegna aukins ofbeldis ungmenna. Allt frá því að mannréttinda og ofbeldisvarnarráð tók til starfa hefur fulltrúi Flokks fólksins kallað eftir aðgerðum til að vinna gegn ofbeldi meðal unglinga. Það er því ánægjulegt að sjá að það er byrjuð margs konar forvarnarvinna hjá ráðunum. Flokkur fólksins hefur lagt ríka áherslu á samráð allra aðila sem umgangast ungmenni. Það er greinilegt að  kominn  er vísir að samvinnu sveitarfélaga, félagsmiðstöðva, lögreglu og Miðstöðva borgarinnar. Á vorönn var hafið samstarf við Heimili og skóla og haldnir 5 fundir með foreldrum skólabarna. Flokki fólksins finnst afar brýnt að halda fleiri fundi með foreldrum því þeir skipa ríkan sess í lífi barna sinna og ábyrgð þeirra er mikil. Ánægjulegt er að sjá að það er til umræðu að hefja foreldrarölt að nýju. Flokkur fólksins fagnar stofnun samfélagslögreglu og vonar að það verði gott framfaraskref fyrir allt samfélagið. Samkvæmt minnisblaði frá skóla-og frístundasviði þá virðast félagsmiðstöðvarnar bera hitann og þungann af forvarnarstarfinu og baráttunni gegn ofbeldi ungmenna. Fulltrúi Flokks fólksins finnst miður að hvergi er minnst á kennara því við vitum að öll börn ganga í skóla og það eru ekki öll börn sem sækja miðstöðvarnar.

    Soffía Pálsdóttir og Kristjana Gunnarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram að nýju  tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins  um stofnun stýrihóps sem kortleggur aukinn vopnaburð eggvopna á meðal ungmenna, sbr. 4 lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 12. janúar 2023. MSS22100160
    Tillögunni er vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Sjálfstæðisflokks gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. 
    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Snemma á haustönn lagði Flokkur fólksins til að stofnaður yrði stýrihópur sem kortlegði aukinn vopnaburð meðal ungmenna í Reykjavík. Hópurinn átti að koma með hugmyndir að forvörnum til að sporna við auknu ofbeldi unglinga sem greinilega hafði aukist. Ein birtingamyndin var að vopnaburður m.a. með eggvopnum hafði aukist. Fulltrúi Flokks fólksins hafði gríðarlegar áhyggjur af þessari þróun og fannst mikilvægt að grípa strax inn í þessa þróun og stofna þennan stýrihóp. Kosturinn við þessa tillögu er að hún er alvöru tillaga og byrjun á hóp sem á að koma með hugmyndir um hvað borg sem stjórnvald getur gert þegar ekki aðeins eru teikn á lofti um aukið ofbeldi ungmenna með eggvopnum heldur skýr merki þess. Það er talsverður tími liðinn frá þvi þessi tillaga var borinn fram og finnst fulltrúa Flokks fólksins það miður hvað málin hafa þokast hægt. Þó að þessi tillaga Flokks fólksins fái ekki brautargengi þá vill fulltrúi Flokks fólksins trúa því að tillagan hafi haft áhrif  því að nú hefur meirihlutinn komið með nýja en svipaða tillögu um samráðsvettvang um börn og ofbeldi. Flokkur fólksins fagnar því auðvitað að nú eigi loksins að gera eitthvað.
     

    Fylgigögn

  7. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks Fólksins um samvinnu vegna aukins ofbeldis ungmenna þar sem eggvopn koma við sögu, sbr. 5 lið fundargerðar mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 12. janúar 2023. MSS22090060
    Tillögunni er vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Sjálfstæðisflokks gegn einu atkvæði fulltrúa Flokks fólksins. 
    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins leggur ríka áherslu á að svið/ráð vinni saman að málum sem  þau eiga sameiginlega snertifleti við. Það má með sanni segja að ofbeldis varnarmál tengist þremur ráðum þ.e. við skóla- og frístundasvið, velferðarsvið og mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð.  Hér er til afgreiðslu tillaga Flokks fólksins þar sem flokkurinn  leggur til að þessi ráð vinni saman að því að sporna gegn auknu ofbeldi meðal ungmenna. Tillagan var lögð fram í  september haustið 2022 og það er því langt síðan að hún var lögð fram. Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað minnt á mikilvægi samvinnu í þessum málaflokki.  Loksins þegar brugðist er við ákalli tillögunnar þá kemst tillagan á dagskrá. Það er athyglisvert og lýsir kannski mikilvægi tillögu Flokks fólksins. Þó tillögunni sé hafnað vísað frá eða hafnað á einhvern hátt hér þá má segja að við henni hafi veri brugðist eins og fram kemur í þriðja dagskrá lið þessa fundar  en þar koma  fram aðgerðir velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs vegna ofbeldis ungmenna. Flokkur fólksins fagnar því framgangi þessarar tillögu þó að henni  verði líklega hafnað því tillagan hefur sannarlega sannað gildi sitt.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Sósíalistar brýna á þeirri staðreynd að tekju- og eignaójöfnuður, misskipting í samfélaginu, er stór þáttur í aukningu glæpa og ofbeldis og á það jafnt við um ofbeldi meðal ungmenna sem heilla samfélaga. Þegar rætt er um ofbeldi og glæpi er lítið minnst á þessa staðreynd. Ísland er farið að sýna æ meiri sjúkdómseinkenni misskiptingar. Börn lifa við sívaxandi streitu og öfgar í sínu lífi. Hlutfall barna sem býr við fátækt eða skort er hærra en það hlutfall meðal almennings alls. Þetta er sjónarmið sem þarf að fá umfjöllun þegar ofbeldi meðal barna og ungmenna er rætt.
     

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs um samráðsvettvang um börn og ungmenni í tengslum við ofbeldi: 

    Lagt er til að settur verði á fót samstarfshópur í Reykjavík sem hefur það hlutverk að leggja til leiðir til að annars vegar að vinna að forvörnum gegn ofbeldi meðal barna og ungmenna og samræma þá vinnu og hins vegar til að bregðast strax við þegar slík brot eiga sér stað. Lögð verði áhersla á þverfaglega samvinnu stofnana og grasrótarsamtaka sem tengjast málefnum barna.

    Frestað.
    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS23060018

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að horft sé til þeirrar samfélagsgerðar sem Íslendingar hafa byggt upp á síðustu áratugum sem eina af orsökum aukins ofbeldis. Tekju- og eignaójöfnuður hefur færst í aukana með þeim afleiðingum að öryggi fólks minnkar. Börn lifa við sívaxandi streitu og öfgar í sínu lífi. Hlutfall barna sem býr við fátækt eða skort er hærra en það hlutfall meðal almennings alls. Þetta er sjónarmið sem þarf að fá umfjöllun þegar ofbeldi meðal barna og ungmenna er rætt.

    Fylgigögn

  9. Kynning á jafnlaunavottun, kynbundnum launamun og jafnlaunakerfi Reykjavíkurborgar. MOS22020006 
    Frestað.

  10. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Á þremur fundum hefur mannréttinda-og ofbeldisvarnarráð rætt um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Fyrsti fundur um þetta málefni var 25. ágúst 2022. Á öðrum fundi 22. september fer fram kynning á verkefninu Barnvæn sveitarfélög og innleiðing Barnasáttmálans. Á þeim fundi var samþykkt að fela  mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu að kanna hvað starfsfólk innan skrifstofunnar gætu tekið  að sér að vera tengiliður við UNICEF og verið umsjónaraðili vegna verkefnisins. Ráðið óskar eftir tillögum eigi síðar en 27. október 2022. Fulltrúi Flokks óskar upplýsinga um hver sé þessi umsjónaraðili og hvað sé að frétta af innleiðingarferlinu? MSS23060047
     

Fundi slitið kl. 14.42

Magnús Davíð Norðdahl Þorvaldur Daníelsson

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Trausti Breiðfjörð Magnússon

Helga Margrét Marzellíusardóttir Sabine Leskopf

Helga Þórðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
19. fundur mannréttinda- og ofbeldisvarnarráðs frá 8. júní 2023