Mannréttinda- og lýðræðisráð
Ár 2018, fimmtudaginn 13. desember, var haldinn 10. fundur Mannréttinda- og lýðræðisráð. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð, Ráðhús og hófst klukkan 10:55. Viðstödd voru Dóra Björt Guðjónsdóttir, Gunnlaugur Bragi Björnsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Skúli Helgason, Katrín Atladóttir, Daníel Örn Arnarson, Kolbrún Baldursdóttir, Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Anna Kristinsdóttir, Óskar J. Sandholt og Elísabet Pétursdóttir sem ritaði fundargerð
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á Stöðuskýrslu starfshóps um innleiðingu stjórnendaupplýsinga.
- Kl. 14.09 tekur Kolbrún Baldursdóttir sæti á fundinum.
- Kl. 14.12 tekur Guðrún Ögmundsdóttir sæti á fundinum.Hörður Hilmarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á skýrslu um niðurstöður rafrænna kosninga í Hverfið mitt 2018.
Guðbjörg Lára Másdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á niðurstöðum starfshóps um reglur mannréttinda- og lýðræðisráðs um skyndistyrki.
Frestað. -
Lagðar fram til afgreiðslu umsóknir mannréttinda- og lýðræðisráðs um styrki.
Frestað. -
Fram fer kynning á stöðu mála í vinnu stýrihóps um hverfisráð.
Frestað. -
Fram fer umræða um næstu skref í vinnu við Lýðræðisstefnu.
Frestað. -
Lögð fram svohljóðandi tillaga frá fulltrúa Flokks fólksins:
Flokkur fólksins leggur til að mannréttinda- og lýðræðisráð sameini krafta sína velferðarsviði í þeim tilgangi að veita innflytjendum í Reykjavík sem eru með atvinnuleyfi sérstaka fræðslu á sínu tungumáli með það að markmiði að hjálpa þeim til að komast sem fyrst út á vinnumarkaðinn.
Greinagerð fylgir tillögunni R19120129.
Frestað.Fylgigögn
Fundi slitið klukkan 16:04
Dóra Björt Guðjónsdóttir Skúli Helgason
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir