Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð
Ár 2021, föstudaginn 10. desember var haldinn 52. fundur, opinn fundur mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarsal og hófst kl. 9:00. Fundinn sat Dóra Björt Guðjónsdóttir, Diljá Ámundadóttir, Ellen J. Calmon, Aron Leví Beck, Anna Wojtynska og Þór Elís Pálsson. Einnig sat fundinn Anna Kristinsdóttir.
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs heldur ávarp og setur opinn fund mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs; Íþróttir leikvangur karlmennskunnar – Málstofa um jafnrétti í íþróttum. R21110078
-
Sigríður Finnbogadóttir verkefnastjóri í kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun Reykjavíkurborgar, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, heldur ávarp; Jafnréttisúttekt Hverfisíþróttafélaga. R21110078
Fylgigögn
-
Ísleifur Gissurarson íþróttastjóri Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) heldur ávarp; Jafnréttisúttekt á Íþróttafélagi Reykjavíkur (ÍR). R21110078
Fylgigögn
-
Svandís Anna Sigurðardóttir sérfræðingur í hinsegin- og jafnréttismálum, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar heldur ávarp; Hinsegin fólk og íþróttir. R21110078
Fylgigögn
-
Jasmina Vajzovic Crnac verkefnastjóri hverfisverkefna í Breiðholti heldur ávarp; Aðgengi fólks af erlendum uppruna að íþróttum í Breiðholti. R21110078
Fylgigögn
-
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur og fulltrúi í framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands heldur ávarp; Skýrsla um kynferðislega áreitni og ofbeldi innan knattspyrnuhreyfingarinnar - Tillögur starfshóps varðandi vinnulag, viðhorf og menningu. R21110078
Fylgigögn
-
Fram fara umræður og spurningar gesta. Til máls taka eftirfarandi fulltrúar: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Ellen J. Calmon, Diljá Ámundadóttir og Þór Elís Pálsson.
-
Pawel Bartozek fundarstjóri og varaformaður menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, dregur saman umræður og slítur fundi.
Fundi slitið klukkan 10:30
Dóra Björt Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
mnl_1012.pdf