Leikskóla- og daggæsluráð
Ár 2026, 12. október, var haldinn 6. fundur leikskóla- og daggæsluráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.30.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður (D), Albert Guðmundsson (D), Kristín K. Waage Kolbeinsdóttir (M), Margrét Rós Sigurjónsdóttir (C), Sandra Hlín Guðmundsdóttir (C), Silja Sóley Birgisdóttir (J) og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Andrea Sigurjónsdóttir, starfsfólk í leikskólum; Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum og Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Guðrún Sigtryggsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Hjörtur Ágústsson, Ólafur Brynjar Bjarkason og Ragnheiður E. Stefánsdóttir. Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um forvarnir og viðbrögð við ofbeldi gagnvart börnum. SFS26100005
Auður Ævarsdóttir, Ester Inga Sveinsdóttir, Hafdís Dögg Guðmundsdóttir og Indíana Rós Ægisdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 14.00 víkur Hjörtur Ágústsson af fundinum.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans þakka kærlega fyrir kynninguna og þá góðu vinnu sem ráðist hefur verið í. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að öryggi, velferð og réttindi barna séu ávallt í fyrirrúmi í leikskólastarfi. Bregðast verður við af festu og ábyrgð við öllum grun um ofbeldi eða óviðeigandi framkomu gagnvart börnum, jafnframt því sem lögð er áhersla á öflugar forvarnir, skýra verkferla og markvissa fræðslu fyrir starfsfólk. Mikilvægt er að allt starfsfólk þekki viðbragðsferla, ljúki skyldufræðslu og njóti stuðnings þegar slík mál koma upp. Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að uppfærðir verkferlar verði kynntir og innleiddir með virku eftirliti og eftirfylgni og að börnum, fjölskyldum, stjórnendum og starfsfólki standi til boða viðeigandi stuðningur þegar alvarleg mál koma upp.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir kynninguna og þá vinnu sem hefur verið unnin að forvörnum og viðbrögðum við ofbeldi gegn börnum í leikskólum Reykjavíkur. Skýrir verkferlar og ábyrgð eru mikilvægur liður í að taka ofbeldi alvarlega. Reynslan af baráttunni gegn ofbeldi sýnir hversu mikilvægt er að takast á við viðhorf og menningu sem geta orðið til þess að ofbeldi sé réttlætt eða gert lítið úr því. Mál af þessum toga eru oft flókin og tilfinningalega erfið fyrir allt leikskólasamfélagið. Innleiðingu verkferla þarf því að fylgja markviss fræðsla, samtal, þjálfun með raunhæfum dæmum og aðgengi að sérhæfðri ráðgjöf og handleiðslu. Það styrkir faglega dómgreind og stuðlar að því að hagsmunir barna séu í fyrirrúmi og að börn og foreldrar mæti skilningi og stuðningi, einnig þegar óvissa ríkir um málsatvik. Fulltrúi Samfylkingarinnar hvetur eindregið til að þessari vinnu verði tryggður nægur tími, fjármagn og faglegur stuðningur og að reynsla barna og foreldra nýtist við áframhaldandi þróun verklags. Vernd barna gegn ofbeldi krefst viðvarandi athygli og fjárfestingar.
-
Drög að fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs 2027, trúnaðarmál.
Frestað. SFS26100006
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 21. september 2026, ásamt umsögn foreldraráðs:
Lagt er til að fjöldi barna í leikskólanum Seljaborg verði aukinn úr 48 börnum í 68 börn frá 1. október 2026.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26080132
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að 20 ný leikskólapláss bætist nú við í Seljaborg. Stækkunin er hluti af þeirri markvissu uppbyggingu leikskólakerfisins sem ráðist var í á síðustu tveimur kjörtímabilum. Frá árinu 2018 hafa 1280 leikskólapláss bæst við í Reykjavík og áfram er verið að opna ný pláss í verkefnum sem ákveðin voru og fjármögnuð á síðustu kjörtímabilum. Nýja einingin við Seljaborg er eitt þeirra verkefna. Mikilvægt er að halda áfram uppbyggingu leikskólakerfisins og tryggja um leið góða mönnun og starfsaðstæður svo hægt sé að taka ný pláss í notkun með farsælum hætti. Þá er tekið undir ábendingar um mikilvægi þess að fullmanna leikskólann og fylgjast með því að útisvæði leikskólans henti vel fyrir aukinn fjölda barna.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 5. október 2026, um breytingu á reglum um leikskólaþjónustu, ásamt reglum um leikskólaþjónustu með merktum breytingum og núgildandi reglum um leikskólaþjónustu.
Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS26020037
Kl. 14.45 víkur Ragnheiður E. Stefánsdóttir af fundinum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 23. september 2026, um nýja samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs Reykjavíkurborgar. MSS26080081
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn styður breytingartillögu áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um að fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla fái rétt til setu á fundum leikskóla- og daggæsluráðs með málfrelsi og tillögurétt, með þeirri viðbót að fulltrúinn skuli vera starfandi leikskólastjóri við leikskóla í Reykjavík sem á aðild að samtökunum. Sjálfstætt starfandi leikskólar eru mikilvægur hluti leikskólaþjónustunnar í Reykjavík. Meirihlutinn telur eðlilegt að þeir eigi fulltrúa á fundum ráðsins og að þekking og reynsla úr daglegu starfi þeirra nýtist við umfjöllun um leikskólamál. Með því að fulltrúinn sé starfandi leikskólastjóri í Reykjavík er tryggð bein tenging við starf leikskóla og þjónustu við börn og fjölskyldur í borginni. Viðbót við 2. mgr. 5. gr. væri því: Fulltrúi Samtaka sjálfstæðra skóla á einnig rétt til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Fulltrúinn skal vera starfandi leikskólastjóri við leikskóla í Reykjavík sem á aðild að samtökunum.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:Fulltrúi Miðflokksins þakkar góðar undirtektir meirihlutans við breytingartillögu hans að samþykkt leikskóla- og daggæsluráðs. Sjálfstætt starfandi skólar þjónusta um 20% leikskólabarna borgarinnar og hafa ákvarðanir innan ráðsins áhrif á starf þessara skóla og því eðlilegt að þeir hafi sæti að borðinu.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Sjálfstætt starfandi leikskólar eru fimmtungur leikskóla í Reykjavík þar sem hver skóli hefur eigin hugmyndafræði, mismunandi áherslur í skólastarfi og mismunandi gjaldtöku fyrir skólavist. Ekki þykir eðlilegt að veita hagsmunasamtökum einkaaðila áheyrn á fundi Reykjavíkurborgar þar sem viðkvæmar upplýsingar eru ræddar. Jafnframt verður ekki hægt að gæta jafnræðis við val á áheyrnarfulltrúa vegna mismunandi rekstrarforma sjálfstætt starfandi skóla þar sem sumir ráðstafa arði til eigenda, aðrir til almannaheilla og sumir greiða ekki út arð. Alltaf stendur til boða að bjóða ákveðnum aðilum áheyrn í ákveðnum liðum á fundum og væri eðlilegra að bjóða fulltrúa sjálfstætt starfandi skóla að sitja fund þegar við á en ekki fasta setu eins og tillagan gerir ráð fyrir.
Áheyrnarfulltrúar leikskólastjóra og starfsfólks í leikskólum leggja fram svohljóðandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra og starfsmanna leikskóla leggja til að fallið verði frá breytingartillögu um fasta setu fulltrúa Samtaka sjálfstæðra skóla í leikskóla- og daggæsluráði Reykjavíkurborgar. Samkvæmt 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 eiga fulltrúar leikskólastjóra, starfsfólks og foreldra lögbundinn rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt. Sú aðkoma er annars eðlis en aðkoma hagsmunasamtaka rekstraraðila. Ráðið fer meðal annars með eftirlit með sjálfstætt starfandi leikskólum, rekstrarleyfi og tillögugerð um fjárframlög. Föst seta hagsmunasamtaka þeirra rekstraraðila sem sæta eftirliti ráðsins getur skapað hagsmunaárekstra og dregið úr trausti á óhlutdrægni stjórnsýslunnar. Jafnframt vakna spurningar um jafnræði gagnvart öðrum hagsmunaaðilum, trúnað og aðgang að viðkvæmum upplýsingum. Samkvæmt 7. og 9. gr. fyrirliggjandi samþykktar eru þegar tryggðir farvegir fyrir samráð og þátttöku hagsmunaaðila án fastrar fundarsetu. Ekki hefur verið sýnt fram á nauðsyn breytingarinnar eða hvernig hún bæti gæði leikskólastarfs.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 1. október 2026, við fyrirspurn leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands um umgjörð um dagheimili, sbr. 8. lið fundargerðar leikskóla- og daggæsluráðs frá 14. september 2026. SFS26090109
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar lýsir áhyggjum af því hversu frjálslega er farið með staðreyndir á 100 daga verkefnalista meirihlutans. Þar er því haldið fram að lokið hafi verið við að móta umgjörð um dagheimili en af svarinu er ljóst að vinnunni er ekki lokið. Tillögur hafa verið sendar á mennta- og barnamálaráðuneytið og kalla þær á reglugerðarbreytingu. Það vekur furðu að tillögur um nýtt daggæslustig séu sendar á ráðuneytið áður en þær eru kynntar í leikskóla- og daggæsluráði borgarinnar. Fulltrúar ráðsins eiga að fá að sjá drögin og hafa raunverulega aðkomu að mótun þeirra.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Ófullnægjandi svar barst við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands um umgjörð við dagheimili. Ekki er ljóst hver samdi tillögurnar og hvenær þær voru mótaðar. Ekki liggur fyrir hvað tillögurnar snúast um og því engin leið að vita hverju er verið að biðja mennta- og barnamálaráðuneytið um að breyta. Það er margt sem þarf að bæta hvað varðar reglugerðina en eðlilegra væri ef þetta hefði í það allra minnsta komið til umræðu inni í leikskóla- og daggæsluráð áður en meirihlutinn merkti við að verkefninu sé lokið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 8. október 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, þrjú mál. SFS26060275
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi leikskóla- og daggæslumála. SFS26070078
-
Áheyrnarfulltrúar leikskólastjóra og starfsmanna leikskóla leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Áheyrnarfulltrúar leikskólastjóra og starfsmanna leikskóla leggja fram eftirfarandi fyrirspurn varðandi námsleyfi sem veitt hafa verið starfsmönnum leikskóla á tímabilinu 2020–2026. Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum fyrir hvert ár tímabilsins. 1. Fjöldi veittra námsleyfa: Hversu margir starfsmenn leikskóla hafa fengið námsleyfi á hverju ári á tímabilinu 2020–2026? 2. Tegund náms: Hversu margir þeirra sem fengu námsleyfi á hverju ári stunduðu nám í leikskólakennarafræðum og hversu margir fengu námsleyfi til að stunda annað nám? Óskað er eftir upplýsingum um hvaða nám var um að ræða í þeim tilvikum. 3. Umsóknir og synjanir: Hversu margar umsóknir um námsleyfi bárust á hverju ári á tímabilinu og hversu mörgum þeirra var synjað? Jafnframt er óskað eftir sundurliðun á því hvort umsækjendur sem fengu synjun höfðu sótt um námsleyfi vegna náms í leikskólakennarafræðum eða vegna annars náms. 4. Forsendur synjana: Á hvaða forsendum hefur umsóknum starfsmanna leikskóla um námsleyfi verið synjað á umræddu tímabili? Hafa verið ákveðin viðmið eða reglur sem liggja til grundvallar afgreiðslu umsókna og hafa þau tekið breytingum á tímabilinu?
Óskað er eftir að upplýsingarnar verði lagðar fram með skýrri sundurliðun eftir árum, þannig að hægt sé að sjá þróun í fjölda umsókna, veittra námsleyfa og synjana á tímabilinu.SFS26100070
Fundi slitið kl. 15.15
Sigrún Ásta Einarsdóttir Albert Guðmundsson
Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Sandra Hlín Guðmundsdóttir Silja Sóley Birgisdóttir
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 12. október 2026