Leikskóla- og daggæsluráð
Ár 2026, 23. nóvember, var haldinn 9. fundur leikskóla- og daggæsluráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.30.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður (D), Albert Guðmundsson (D), Andrea Edda Guðlaugsdóttir (B), Kristín K. Waage Kolbeinsdóttir (M), Margrét Rós Sigurjónsdóttir (C), Silja Sóley Birgisdóttir (J) og Skúli Helgason (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum og Sigríður Dröfn Ámundadóttir, Samtök sjálfstæðra skóla. Eftirtalinn áheyrnarfulltrúi tók sæti á fundinum með fjarfundabúnaði: Linda Ósk Sigurðardóttir, starfsfólk í leikskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson, Ólafur Brynjar Bjarkason og Ragnheiður E. Stefánsdóttir. Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning og umræða um hugmyndafræði Hjallastefnunnar. SFS26110097
Bóas Hallgrímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kl. 13.39 tekur Guðrún Gunnarsdóttir sæti á fundinum.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Leikskóla- og daggæsluráð þakkar fyrir áhugaverða kynningu á hugmyndafræði Hjallastefnunnar. Fróðlegt var að fá innsýn í hvernig staðið er að kennslu og uppeldisstarfi innan Hjallastefnunnar, þar sem lögð er áhersla á skýrt skipulag, jafnrétti, lýðræði og sköpun. Jafnframt er ánægjulegt að sjá hvernig hugmyndir Margrétar Pálu Ólafsdóttur hafa þróast og raungerst í starfsemi sem hefur fest sig í sessi í íslensku skólasamfélagi. Með því eykst fjölbreytni í leikskólastarfi og foreldrum og börnum standa til boða fleiri möguleikar þegar kemur að vali á leikskólaplássi.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir góða kynningu á starfsemi Hjallastefnunnar, skóla sem sannarlega hefur sannað gildi sitt með farsælu starfi í 35 ár og hugmyndafræði sem ber vitni faglegum metnaði og skýrri sýn á mismunandi þarfir barna með áherslu á skýran ramma starfseminnar þar sem fléttast saman áherslur á kynjaskiptingu, leikefni úr náttúrulegum efnivið, og áhersla í námskrá og daglegu starfi á meginþætti sem sannarlega eru þýðingarmiklir fyrir uppeldi og þroska barna : jafnrétti, lýðræði og sköpun.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins þakkar frábæra kynningu á Hjallastefnunni sem Miðflokkurinn hafði óskað eftir. Undirrituð hefur sjálf gríðarlega góða reynslu af því starfi sem foreldri og kennari. Fulltrúinn telur mikilvægt að í skólakerfinu sé val fyrir foreldra en ekki síður starfsfólk. Það er hvetjandi fyrir kennara að geta valið sér ólíkan vettvang að námi loknu. Þá mætti gera skapandi kennurum það auðveldara að hefja sinn eigin rekstur og skapa sína eigin skólastefnu líkt og Margrét Pála gerði fyrir mörgum áratugum síðan.
-
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 11. nóvember 2026, um staðfestingu starfsáætlana leikskóla skólaárið 2026-2027. Jafnframt lagðar fram starfsáætlanir eftirtalinna leikskóla: Askja, Austurborg, Álftaborg, Árborg, Ártúnsskóli, Bakkaborg, Barnaheimilið Ós, Berg - Klébergsskóli, Bjartahlíð, Blásalir, Borg, Brákarborg, Brekkuborg, Dalskóli, Drafnarsteinn, Engjaborg, Fífuborg, Funaborg, Furuskógur, Geislabaugur, Grandaborg, Grænaborg, Gullborg, Hamrar, Hálsaskógur, Heiðarborg, Hlíð, Hof, Holt, Hólaborg, Hraunborg, Hulduheimar, Jöklaborg, Jörfi, Klambrar, Klettaborg, Krílasel, Kvistaborg, Langholt, Laufásborg, Laufskálar, Laugasól, Leikskóli Félagsstofnunar stúdenta, Leikskóli LFA, Lundur, Lyngheimar, Maríuborg, Miðborg, Múlaborg, Nóaborg, Rauðaborg, Rauðhóll, Regnboginn, Reynisholt, Rofaborg, Seljaborg og Seljakot, Skerjagarður, Sólborg, Stakkaborg, Steinahlíð, Suðurborg, Sunnuás, Sunnufold, Sæborg, Sælukot, Tjörn, Ungbarnaleikskólinn Hallgerðargötu og Bríetartúni, Vesturborg, Vinagarður, Vinaminni, Waldorfleikskólinn Sólstafir, Ægisborg, Ævintýraborg Eggertsgötu, Ævintýraborg Nauthólsvegi, Ævintýraborg Vogabyggð og Ösp.
Samþykkt. SFS26030150
Elísabet Helga Pálmadóttir, Hildur Lilja Jónsdóttir og Valborg Hlín Guðlaugsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn þakkar stjórnendum og starfsfólki leikskólanna fyrir vinnu við starfsáætlanir. Mikilvægt er að áætlanirnar nýtist sem virk stjórntæki með skýrum markmiðum, mati á árangri og eftirfylgni umbóta.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar kynningu á starfsáætlunum 80 leikskóla í borginni á þessu skólaári. Áætlanirnar endurspegla fjölbreytni og faglegan metnað til að halda uppi leikskólastarfi sem stenst jöfnuð við það besta sem þekkist á alþjóðavettvangi. Starf leikskólanna einkennist af mikilli faglegri grósku, sterkri vinnustaðamenningu og útsjónarsemi þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður. Þótt viðhald húsnæðis, veikindi og breytingar á vinnutíma reyni á starfið, mælast stjórnun, starfsandi og jafnrétti í leikskólum borgarinnar að jafnaði mjög hátt í Stofnun ársins og skýr sókn er í fagmenntun, læsisstarfi og valdeflingu barna um alla borg. Starfsfólk og stjórnendur eiga hrós skilið fyrir gott og metnaðarfullt starf við aðstæður sem oft eru krefjandi, þar sem meginverkefnin framundan eru að hækka faghlutfall starfsfólks og halda áfram að bæta starfsaðstæður. Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur áherslu á að mikilvægt er að hrinda í framkvæmd sem fyrst tillögum um umsjónarmenn húsnæðis og aukna íslenskukennslu starfsfólks og barna með annað móðurmál en íslensku.
Fylgigögn
- Minnisblað
- Askja
- Austurborg
- Álftaborg
- Árborg
- Ártúnsskóli
- Bakkaborg
- Barnaheimilið Ós
- Berg - Klébergsskóli
- Bjartahlíð
- Blásalir
- Borg
- Brákarborg
- Brekkuborg
- Dalskóli
- Drafnarsteinn
- Fífuborg
- Engjaborg
- Funaborg
- Furuskógur
- Geislabaugur
- Grandaborg
- Grænaborg
- Gullborg
- Hamrar
- Hálsaskógur
- Heiðarborg
- Hlíð
- Hof
- Holt
- Hólaborg
- Hraunborg
- Hulduheimar
- Jöklaborg
- Jörfi
- Klambrar
- Klettaborg
- Krílasel
- Kvistaborg
- Langholt
- Laufásborg
- Laufskálar
- Laugasól
- Leikskóli Félagsstofnunar stúdenta
- Leikskóli LFA
- Lundur
- Lyngheimar
- Maríuborg
- Miðborg
- Múlaborg
- Nóaborg
- Rauðaborg
- Rauðhóll
- Regnboginn
- Reynisholt
- Rofaborg
- Seljaborg og Seljakot
- Skerjagarður
- Sólborg
- Stakkaborg
- Steinahlíð
- Suðurborg
- Sunnuás
- Sunnufold
- Sæborg
- Sælukot
- Tjörn
- Ungbarnaleikskólinn Hallgerðargötu og Bríetartúni
- Vesturborg
- Vinagarður
- Vinaminni
- Waldorfleikskólinn Sólstafir
- Ægisborg
- Ævintýraborg Eggertsgötu
- Ævintýraborg Nauthólsvegi
- Ævintýraborg Vogabyggð
- Ösp
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúa Miðflokksins:
Leikskóla- og daggæsluráð samþykkir að innleiða heimgreiðslur vegna barna frá 12 mánaða aldri og fram að 24 mánaða aldri. Markmiðið er að foreldrar hafi raunverulegt fjárhagslegt svigrúm til að velja hvort barn hefji dagvistun eða dvelji lengur heima. Heimgreiðsla verði 250.000 krónur á mánuði fyrir hvert barn. Rétturinn verði óháður því hvort barninu hafi verið boðið leikskólapláss velji forsjáraðilar að nýta ekki niðurgreidda dagvistun á greiðslutímabilinu. Eftirfarandi skilyrði gildi: 1. Barn og a.m.k. annar forsjáraðili hafi lögheimili í Reykjavík. 2. Barnið sé orðið 12 mánaða en hafi ekki náð 24 mánaða aldri. 3. Ekki sé samtímis greitt opinbert framlag vegna barnsins til leikskóla, dagforeldris eða annars dagvistunarúrræðis. 4. Greiðslan sé bundin við barnið og óháð því hvort móðir, faðir eða annar forsjáraðili annast barnið. 5. Greiðslur falli niður þegar niðurgreidd dagvistun hefst eða við lok þess mánaðar sem barnið nær 24 mánaða aldri.
Greinargerð fylgir.
Tillögunni er vísað frá með sex atkvæðum leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands gegn atkvæði leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúa Miðflokksins. SFS26110064
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn leggur ríka áherslu á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunar og koma betur til móts við barnafjölskyldur. Á 12 mánaða verkefnalista meirihlutans er kveðið á um að tryggja tímabundnar greiðslur til fjölskyldna sem bíða eftir leikskólaplássi eða daggæslu. Greiðslurnar verða bundnar því skilyrði að barn sé á biðlista eftir dagvistun og falla niður þegar barn fær úrræði eða er ekki lengur á biðlista. Markmiðið er að styðja við fjölskyldur sem hafa ekki enn fengið þá þjónustu sem þær óska eftir frá borginni. Vinna við útfærslu greiðslnanna er þegar hafin.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar bendir á að tillaga Miðflokksins um 250 þúsund króna heimgreiðslur á mánuði fyrir börn á aldrinum 12-24 mánaða er í senn óraunhæf, óréttlát og ávísun á ójöfnuð. Hún er óraunhæf því hún hefur í för með sér gríðarleg viðbótarútgjöld fyrir borgina á tímum mikillar hagræðingar sem felur í sér lækkun útgjalda. Ætla má að tillagan myndi kalla á viðbótarútgjöld sem nema rúmum 1 milljarði króna á ári ef miðað er við núverandi fjölda barna á biðlista eftir leikskólaplássi. Hún er óréttlát því hún vinnur gegn jafnrétti kynjanna. Þótt greiðslan sé kynhlutlaus á pappírnum verður það í reynd foreldrið með lægri launin sem tekur að sér umönnun og vegna launamunar kynjanna er það oftast móðirin. Reynslan af heimgreiðslum á Norðurlöndum sýnir einmitt að það eru langoftast mæður sem fá heimgreiðslurnar, staða þeirra á vinnumarkaði veikist til frambúðar á meðan áhrifin á feður eru nánast engin. Í þriðja lagi er tillagan ávísun á ójöfnuð með því að mismuna umsækjendum um almannaþjónustu þar sem foreldrar barna á leikskólaaldri njóti sérstakra heimgreiðslna meðan þeir bíða eftir leikskólaplássi meðan umsækjendur um ýmiss konar velferðar- og skólaþjónustu sem getur skipt miklu fyrir lífsgæði þeirra og fjölskyldumeðlima, njóti ekki slíks fjárhagslegs ávinnings meðan beðið er eftir þjónustunni.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúa Miðflokksins finnst afar miður að tillögunni um valfrelsi foreldra til heimgreiðslna hafi verið vísað frá. Hagsmunir barna virðast enn eina ferðina lúta í lægra haldi sökum jafnréttissjónarmiða eða kerfisbundinna aðstæðna. Fæðingarorlof á Íslandi mætti vissulega vera lengra en þar sem svo er ekki gæti borgin komið til móts við foreldra og skapað barnvænna samfélag og hvata til öruggra tengsla milli foreldra og barna.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Heimgreiðslur geta virkað sem tímabundið úrræði á meðan skortur er á leikskólaplássum. Reynsla Norðurlanda sýnir hins vegar að tekjulágar fjölskyldur og fjölskyldur með innflytjendabakgrunn eru líklegri en aðrar til að þiggja slíkar greiðslur sem eykur stéttaskiptingu. Heimgreiðslur geta jafnframt dregið úr atvinnuþátttöku kvenna. Þar sem konur eru að jafnaði tekjuminni en karlar felst fjárhagslegur hvati í því fyrir fjölskyldur að konan dragi sig af vinnumarkaði til að hámarka heildartekjur heimilisins. Ráðast þyrfti í víðtækari aðgerðir hjá ríkinu til að draga úr launamun kynjanna. Einnig þyrfti að huga að áhrifum seinkun leikskólagöngu á snemmtæka íhlutun, bæði hvað varðar inngildingu barna með erlendan bakgrunn og börn með grun um þroskafrávik. Seinkun á leikskólagöngu getur jafnframt haft áhrif á málörvun og félagslega aðlögun barna. Af þeim sökum getur fulltrúinn ekki samþykkt það fyrirkomulag heimgreiðslna sem hér er lagt til. Fulltrúinn er hins vegar opinn fyrir fyrirkomulagi þar sem foreldrar fá greiðslur á meðan þeir bíða eftir leikskóla- eða dagvistunarplássi og hafa því í raun verið neyddir til að hverfa af vinnumarkaði. Aukin áhersla ætti að vera lögð á lengingu fæðingarorlofsins ásamt ríkari áherslu á stuðning og fræðslu til foreldra um hvernig á að styðja við alhliða þroska barna.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 12. nóvember 2026:
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs leggur til að fjölda barna í eftirtöldum leikskólum Reykjavíkurborgar verði breytt með eftirfarandi hætti: Í Björtuhlíð er gert ráð fyrir 126 börnum sem breytist í 118 börn. Í Dalskóla er gert ráð fyrir 185 börnum sem breytist í 166 börn. Í Fífuborg er gert ráð fyrir 71 barni sem breytist í 68 börn. Í Furuskógi er gert ráð fyrir 110 börnum sem breytist í 105 börn. Í Holti er gert ráð fyrir 92 börnum sem breytist í 82 börn. Í Jöklaborg er gert ráð fyrir 118 börnum sem breytist í 105 börn. Í Reynisholti er gert ráð fyrir 80 börnum sem breytist í 77 börn. Í Sólborg er gert ráð fyrir 85 börnum sem breytist í 74 börn. Fjöldinn eftir breytingar er í samræmi við fjölda barna í viðkomandi leikskólum síðastliðin ár. Ekki er því um raunfækkun barna að ræða.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar situr hjá við afgreiðsluna.
Vísað til borgarráðs. SFS26110010Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn leggur áherslu á að skráður hámarksfjöldi barna endurspegli raunverulegt leikrými og aðstæður í hverjum leikskóla. Leiðréttingin felur ekki í sér fækkun nýtanlegra plássa heldur er einungis um leiðréttingu á skráningu að ræða. Mikilvægt er að skráning sé uppfærð samhliða breytingum á húsnæði og starfsemi svo áætlanagerð og upplýsingar um þjónustugetu byggist á réttum gögnum.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillagan gerir ráð fyrir að fækkað verði um samtals 72 börn frá leyfilegum hámarksfjölda í átta borgarreknum leikskólum í borginni. Ekki er um að ræða raunfækkun barna í núverandi leikskólum heldur staðfestingu á þeim fjölda sem í reynd hefur verið í umræddum leikskólum undanfarin ár. Rétt er að taka fram að hér er um að ræða viðbótarfækkun umfram þá 7% fækkun plássa, sem samþykkt var árið 2018 í tengslum við metnaðarfullar tillögur sérstaks stýrihóps um bættar starfsaðstæður í leikskólum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 19. nóvember 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, þrjú mál. SFS26060275
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi leikskóla- og daggæslumála. SFS26070078
Fundi slitið kl. 14.51
Sigrún Ásta Einarsdóttir Albert Guðmundsson
Andrea Edda Guðlaugsdóttir Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Silja Sóley Birgisdóttir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 23. nóvember 2026