Leikskóla- og daggæsluráð - Fundur nr. 1

Leikskóla- og daggæsluráð

Ár 2026, 22. júní, var haldinn 1. fundur leikskóla- og daggæsluráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.34.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður (D), Albert Guðmundsson (D), Björg Magnúsdóttir (C), Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir (M), Margrét Rós Sigurjónsdóttir (C), Silja Sóley Birgisdóttir (J) og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Guðrún Gunnarsdóttir, leikskólastjórar og Linda Ósk Sigurðardóttir, starfsfólk í leikskólum. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Hjörtur Ágústsson, Ólafur Brynjar Bjarkason og Ragnheiður E. Stefánsdóttir.
Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, um samþykkt borgarstjórnar um stofnun leikskóla- og daggæsluráðs. MSS26060009

    Áheyrnarfulltrúar starfsfólks í leikskólum og leikskólastjóra leggja fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnafulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum gagnrýna þá breytingu að taka leikskólastigið úr skóla- og frístundaráði og stofna nýtt ráð. Leikskólinn er samkvæmt lögum fyrsta skólastigið. Vekur það furðu að verið sé að blanda því við daggæsluráð. Bent er á að eftir breytinguna er skóla og frístundaráð rangnefni. Skóli er samheiti yfir öll skólastig en ekki heiti á grunnskólanum. Réttnefni á skóla- og frístundaráði væri þá grunnskóla- og frístundaráð eða grunnskóla-, tónlistarskóla- og frístundaráð ef tónlistarskólinn er enn partur af ráðinu.

    Áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskólum leggur fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna gagnrýnir að leikskólastigið sé aðskilið frá skóla- og frístundaráði og sett í nýtt ráð. Samskipti og samræmi á milli skólastiga skiptir mjög miklu máli, enda er leikskólastigið fyrsta skólastigið. Foreldrar leikskólabarna eru annaðhvort með börn í grunnskólum eða væntanleg börn í grunnskólum. Það er mikilvægt að samskipti og áherslur séu samstíga á milli stiga.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn ákvað að stofna sérstakt leikskóla- og daggæsluráð til þess að draga fram mikilvægi málaflokkanna. Skóla- og frístundasvið hefur umsjón með bæði leikskóla- og daggæsluráði og skóla- og frístundaráði sem er lykilatriði í því að málefni beggja skólastiga séu rædd í samfellu og gott samtal sé á milli ráðanna.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. júní 2026, þar sem greint er frá því að á fundi borgarstjórnar 2. júní 2026 hafi eftirtalin verið kosin í leikskóla- og daggæsluráð:

    Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður
    Björg Magnúsdóttir
    Albert Guðmundsson
    Margrét Rós Sigurjónsdóttir
    Silja Sóley Birgisdóttir
    Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir
    Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

    Til vara:
    Brynjar Níelsson
    Ingunn Rós Kristjánsdóttir
    Friðjón R. Friðjónsson
    Andrea Edda Guðlaugsdóttir
    Sigrún E Unnsteinsdóttir
    Helgi Áss Grétarsson
    Stein Olav Romslo

    Jafnframt lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. júní 2026, um að Bjarnveig Birta Bjarnadóttir taki sæti sem varafulltrúi í stað Stein Olav Romslo.

    MSS26060009

    Fylgigögn

  3. Björg Magnúsdóttir er kosin varaformaður leikskóla- og daggæsluráðs. Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðsluna. SFS26060061

  4. Lagt fram yfirlit sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. júní 2026, yfir áheyrnarfulltrúa í leikskóla- og daggæsluráði. SFS26060049

    Fylgigögn

  5. Lagt fram fundadagatal leikskóla- og daggæsluráðs júní – desember 2026. SFS26060062

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á Verkefnalista Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í borgarstjórn, verkefnalisti.is SFS26060136

    Áheyrnarfulltrúar starfsfólks í leikskólum og leikskólastjóra leggja fram svohljóðandi bókun:

    Áheyrnafulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum gagnrýna harðlega þá undarlegu afstöðu meirihlutans að ætla að hefja samtal við barna- og menntamálaráðherra um áhrif afnáms eins leyfisbréfs og styttingar leikskólakennaranáms á mönnun leikskóla og ræða mótvægisaðgerðir. Búið er að sýna fram á með haldbærum gögnum að eitt leyfisbréf hefur gert það að verkum að flæðið á milli skólastiga hefur nánast verið jafnt undanfarin tvö ár. Það var svo sannarlega ekki raunin fyrir leyfisbréfabreytinguna og hallaði þar verulega á leikskólastigið. Það útskrifuðust 128 úr meistaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu með áherslu á menntunarfræði leikskóla árið 2025. Er það sem dæmi töluvert fleiri en útskrifuðust með meistarapróf í lögfræði það sama ár. Meistaranám í menntunarfræði leikskóla er því mjög vinsælt og einstaklingar setja ekki fyrir sig að mennta sig í leikskólafræðum. Það lýsir miklum fordómum gagnvart menntunarfræði ungra barna að láta sér detta það í hug að gera minni kröfur til þeirra sem kenna á leikskólastiginu. Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki. Það eru allar forsendur til að fjölga kennurum enn frekar. Tækifærin eru svo sannarlega til staðar og þau eigum við að nýta. Þannig aukum við gæði náms í leikskólum börnum til heilla. Leikskólinn er fyrir börn og þau eiga það besta skilið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands tekur undir bókun starfsmanna og stjórnenda í leikskólum sem gagnrýni á verkefni meirihlutans um samtal við barna- og menntamálaráðherra um afnám eins leyfisbréfs og styttingu leikskólakennaranáms. Fulltrúi Sósíalista bendir jafnframt á að verkefni meirihlutans snúa helst að foreldrum leikskólabarna og aukinni áherslu á einkavæðingu leikskólakerfisins. Afar fáar aðgerðir snúast um bættar starfsaðstæður starfsfólks eða koma inn á velferð og farsæld ungra barna.  

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutinn leggur mikla áherslu á að ná árangri í skólamálum en þar þarf að huga allt í senn að aðstæðum og ánægju kennara og starfsfólks, gæðum leikskólastarfs fyrir börnin og hvernig við þjónustum fjölskyldur í borginni sem best. Það er vilji þessa meirihluta að gera allt sem hægt er til þess að Reykjavík verði leiðandi í leikskólastarfi og að leikskólakennarar sækist eftir því að vinna í sveitarfélaginu.

  7. Fram fer kynning á húsnæðismálum leikskóla. SFS26060067

    Guðni Guðmundsson, Dagur Bollason, Daníel Benediktsson og Ásdís Hallgrímsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Miðflokksins vill minna á mikilvægi þess að huga að öllum þáttum í hönnun skólahúsnæða, þar á meðal útileiksvæðin. Mikilvægt er að útisvæði barna byggi í auknum mæli á náttúrulegum efnivið, fjölbreyttu landslagi og tengingu við náttúruna fremur en einsleitri steypu eða gerviefnum. Rannsóknir sýna að regluleg tenging barna við náttúrulegt umhverfi hefur jákvæð áhrif á líðan þeirra, eykur hreyfingu og styrkir ónæmiskerfið. Jafnframt er mikilvægt að útisvæði séu ekki öll á jafnsléttu heldur bjóði upp á hæðir, ójafnt undirlag og náttúrulegar hindranir. Mikilvægt er að hanna fjölbreytt leiksvæði sem styðja við jafnvægi, samhæfingu og grófhreyfiþroska barna. Rannsóknir benda til þess að fjölbreytt hreyfi- og skynáreiti á fyrstu árum geti haft jákvæð áhrif á málþroska, einbeitingu og undirbúning fyrir lestur og nám síðar á skólagöngu. Þannig er hægt að styðja bæði við heilsu, þroska og menntun barna til framtíðar.

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. júní 2026, um samþykkt borgarráðs um breytingar á reglum um leikskólaþjónustu. SFS26020037

    Fylgigögn

  9. Lagt fram fjárhagsuppgjör skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2025 ásamt greinargerð skóla- og frístundasviðs. SFS24080105

    Kl. 15.16 víkur Linda Ósk Sigurðardóttir af fundinum.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram yfirlit yfir bókfærðan kostnað vegna ferða skóla- og frístundasviðs október-desember 2025, dags. 11. júní 2026. SFS24080107

    Fylgigögn

  11. Lagt fram yfirlit yfir innkaup skóla- og frístundasviðs yfir 10 m.kr., árið 2025, dags. 1. júní 2026. SFS24080106

    Fylgigögn

  12. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 11. júní 2026, um hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs 2026. SFS26060038

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 5. júní 2026, um embættisafgreiðslur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, þrjú mál. SFS22080009

    Kl. 15.34 víkur Anna Laufey Stefánsdóttir af fundinum.

    Fylgigögn

  14. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi leikskóla- og daggæslumála. SFS24080154

Fundi slitið kl. 15:37

Sigrún Ásta Einarsdóttir Albert Guðmundsson

Björg Magnúsdóttir Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Silja Sóley Birgisdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 22. júní 2026