Íþrótta- og útilífsráð
Ár 2026, föstudaginn 13. nóvember var haldinn 36. fundur íþrótta- og útilífsráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 9:08. Viðstödd voru: Bjarni Guðjónsson formaður, Björn Gíslason, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Albert Guðmundsson, Stefán Pálsson, Lárus Blöndal Sigurðsson og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Andrés B. Andreasen, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Helga Friðriksdóttir og Fany Larota Catunta sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning formanns um skipulagsmál í Laugardalnum. MIR26110011
-
Lögð fram samþykkt fyrir íþrótta- og útilífsráð sem var breytt á fundi borgarstjórnar 20. október 2026, ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar dags. 2. nóvember 2026. MSS26080081
Fylgigögn
-
Lögð fram trúnaðarmerkt tillaga sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs dags. 10. nóvember 2026 um breytt fyrirkomulag á meindýravörnum hjá Dýraþjónustunni. MIR26080015
Greinargerð fylgir tillögunni.
Frestað.
-
Lagt fram svar skrifstofustjóra íþróttaborgar við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um framboð til heilsueflingar eldri borgarbúa sbr. 33. fund íþrótta- og útilífsráðs 11. september 2026. MIR26090013
Fylgigögn
-
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að Menningar- og íþróttasvið efni til kynningarfundar í Laugardal þar sem upplýst verði um stöðu mála varðandi Laugardalslaug, framtíð stúkumannvirkisins við laugina og framtíðarhorfur. Fundurinn verði haldinn hið allra fyrsta og rækilega auglýstur á miðlum borgarinnar og á sundstöðum.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26110016
Frestað.
-
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir öllum undirliggjandi gögnum vegna útreiknings á heildar fjárframlögum til íþróttafélaga samkvæmt skýrslu sviðsstjóra MÍR dags. 8. september 2026 um aðstöðumál og fjárframlög til íþróttafélaga. MIR26110015
-
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Ítrekuð er ósk á svari frá MÍR, sem lagt var fram í fyrirspurn á fundi Íþrótta og útilífsráði 11. september sl., en var ekki svarað á fundi ráðsins þann 2.október. Þar sem fasteignagjöld eru rukkuð, er lóðamat samrýmt hjá Reykjavíkurborg, þ.e. eru allar lóðirnar sem íþróttafélögin nota skilgreindar sem lóðir undir íþróttastarfsemi? MIR26090014
-
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Stendur til að endurnýja Samstarfssamning ÍBR og Reykjavíkurborgar dags. 20.2.2024, en samningurinn rennur út í lok árs 2026? MIR26110014
Fundi slitið kl. 10:24
Bjarni Guðjónsson
Björn Gíslason
Margrét Rós Sigurjónsdóttir
Albert Guðmundsson
Stefán Pálsson
Lárus Blöndal Sigurðsson
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
Bjarni Guðjónsson Björn Gíslason
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Albert Guðmundsson
Stefán Pálsson Lárus Blöndal Sigurðsson
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íþrótta- og útilífsráðs 13.11.26