Íþrótta- og útilífsráð - Fundur nr. 32

Íþrótta- og útilífsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 9. september var haldinn 32. fundur íþrótta- og útilífsráðs. Fundurinn var haldinn með rafrænum hætti og hófst kl. 08:36. Viðstödd voru: Bjarni Guðjónsson formaður, Björn Gíslason, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Albert Guðmundsson, Stefán Pálsson og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Jóhanna Garðarsdóttir og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram að nýju drög að reglum um Frístundakort fyrir 67 ára og eldri sbr. 31. fund íþrótta- og útilífsráðs 28. ágúst 2026. MIR26060016
    Jafnframt lögð fram umsögn öldungaráðs dags. 7. september 2026 varðandi málið.


    Samþykkt með fjórum atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar. Fulltrúar Vinstrisins og Samfylkingar sátu hjá.


    Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
    Frístundakort fyrir efnaminni eldri borgara í Reykjavík er jákvæð nýlunda, enda ljóst að mikið er til þess vinnandi að tryggja þessum samfélagshópi greiðan aðgang að tómstunda- og íþróttastarfi. Fulltrúi Vinstrisins fagnar því samþykkt þessarar tillögu. Það vekur þó athygli á hörðum niðurskurðartímum í rekstri borgarinnar að meirihlutaflokkarnir: Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn, sjái færi til að stofna til nýrra útgjaldafrekra verkefna innan sviðsins. Slíkt kynni að skjóta skökku við ef grípa þarf til niðurskurðar á eldri verkefnum á komandi vikum og mánuðum.


    Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
    Við styðjum að sjálfsögðu frístundastyrk fyrir eldri borgara en það er ekki hægt að samþykkja tillöguna eins og hún liggur fyrir. Áætlaður árlegur styrkkostnaður er á bilinu 58,9 - 244,7 m.kr. efri mörkin eru meira en fjórföld þau neðri. Hér er mál keyrt í gegn til að haka við verkefni á verkefnalista, sama hvað það kostar og enginn veit í raun hvað það kostar. Tillagan er ekki fjármögnuð og ekki liggur fyrir hvenær fólk mun geta farið að nýta styrkinn. Öldungaráð fagnar tillögunni en FEB telur tekjuviðmiðin of lág og að þau þarfnist frekari skoðunar. Við tökum undir það. Um leið vilja borgarfulltrúar Samfylkingar vara við sífellt meiri notkun tekjutengingar, þar sem lítil tekjuhækkun getur fellt niður mörg réttindi í einu og fólk með svipaðar tekjur situr þá ekki við sama borð. Við tökum undir athugasemd frá fulltrúa heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem styrkur nýtist takmarkað ef framboðið hentar ekki þeim sem helst þurfa á honum að halda.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 08:50

Bjarni Guðjónsson Björn Gíslason

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Albert Guðmundsson

Stefán Pálsson Bjarnveig Birta Bjarnadóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íþrótta- og útilífsráðs 09.09.26