Íþrótta- og tómstundaráð
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ
Ár 2015, föstudaginn 12. júní var haldinn 228. fundur íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í hjá ÍSÍ Engjateigi og hófst kl. 15:10. Viðstaddir: Þórgnýr Thoroddsen formaður, Eva Einarsdóttir, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir varamaður fyrir Bjarna Þór Sigurðsson, Magnús Már Guðmundsson varamaður fyrir Evu Baldursdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Kjartan Magnússon og Trausti Harðarson. Einnig: Hermann Valsson VG, Ingvar Sverrison ÍBR, Ómar Einarsson sviðsstjóri, Gísli Árni Eggertsson skrifstofustjóri og Helga Björnsdóttir skrifstofustjóri sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram 3. mánaða uppgjör ÍTR.
2. Lögð fram drög að dagskrá 17. júní.
3. Lögð fram tillaga ÍTR að verkefni við kynjaða fjárhagsáætlun 2016 – sumarstörf ÍTR.
Samþykkt.
4. Lagt fram bréf Þjónustumiðstöðvarinnar Miðgarðs dags. 21. maí sl. vegna samþykktar hverfisráðs Grafarvogs um íþróttahús við Egilshöll.
5. Lagt fram svar Umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8. júní sl. vegna fyrirspurnar fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina frá fundi 22. maí sbr. 13. liður.
6. Lagt fram bréf Halldóru Gunnarsdóttur sérfræðings á Mannréttindaskrifstofu dags. 3. júní sl. varðandi aðgerðaráætlun í jafnréttismálum 2015-2019.
7. Lögð fram eftirfarandi tillaga íþrótta- og tómstundaráðs:
Íþrótta- og tómstundaráð óskar eftir því við ríkisvaldið að bundið slitlag verði lagt á veginn, sem liggur að útivistarsvæðinu í Skálafelli og að umrædd framkvæmd verði áfram á samgönguáætlun.
Samþykkt.
kl. 15:35 kom Kári Arnarsson Reykjavíkurráði ungmenna á fundinn.
8. Sameiginlegur fundur með stjórn ÍBR. Frá stjórn ÍBR sátu fundinn: Viggó H. Viggósson, Frímann Ari Ferdinardsson, Björn Magnús Björgvinsson, Haukur Þór Haraldsson, Örn Andrésson og Lilja Sigurðardóttir. Rætt var m.a. um eftirfarandi:
• Samning milli Reykjavíkurborgar og ÍBR f.h. félaganna. Sviðsstjóra ÍTR falið að vinna að samningi milli aðila.
• Stefnu í íþróttamálum í Reykjavík 2010-2020
• Stefnumótun til 2020 verkefnastöðu og áframhald
• Lagt fram bréf ÍBR dags. 10 júní sl. þar sem óskað er eftir samstarfi við ráðið um sameiginlega stefnu í afreksíþróttamálum.
Fundi slitið kl. 17:30.
Þórgnýr Thoroddsen
Eva Einarsdóttir Magnús Már Guðmundsson
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir Kjartan Magnússon
Marta Guðjónsdóttir Trausti Harðarson
PDF útgáfa fundargerðar
Íþrótta- og tómstundaráð 12.6.2015 - prentvæn útgáfa