Innkauparáð - Fundur nr. 73

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2005, miðvikudaginn 2. febrúar, var haldinn 73. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:55. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes Sigursveinsson og Haukur Leósson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar, og Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, fulltrúi skrifstofustjóra borgarstjórnar, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Guðbjarts Sigfússonar, yfirverkfræðings hjá Gatnamálastofu, þar sem lagt er til að heimiluð verði framhaldskaup á tveimur stjórnkössum vegna uppsetningar á nýjum og breyttum umferðarljósum á Rauðarárstíg-Laugavegi-Hverfisgötu og Snorrabraut-Laugavegi-Hverfisgötu, áætlaður kostnaður við kaup stjórnkassana um 4,5 mkr., auk virðisaukaskatts.
Erindi yfirverkfræðings hjá Gatnamálastofu samþykkt.
Guðbjartur Sigfússon sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram bréf dómnefndar, dags. 31. janúar 2005, varðandi alútboð á viðbyggingu við Vogaskóla, sbr. 4. liður fundargerðar innkauparáðs frá 26. f.m., þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Sveinbjörn Sigurðsson ehf. á grundvelli tillögu nr. 4 og tilboðs að fjárhæð kr. 467.827.271.
Tillaga dómnefndar samþykkt með 2 samhljóða atkvæðum. Haukur Leósson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Þorkell Jónsson, staðgengill forstöðumanns Fasteignastofu, sat fundinn við meðferð málsins.

3. Lagður fram úrskurður kærunefndar útboðsmála, dags. 26. þ.m., í máli nr. 41/2004, Securitas hf. gegn Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.

Fundi slitið kl. 13:40

Hrólfur Ölvisson

Haukur Leósson Jóhannes Sigursveinsson