Innkauparáð - Fundur nr. 66

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2004, miðvikudaginn 27. október, var haldinn 66. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13:00. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Haukur Leósson og Steinar Harðarson. Jafnframt sátu fundinn Sjöfn Kristjánsdóttir, forstjóri Innkaupastofnunar, Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar, og Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, fulltrúi skrifstofustjóra borgarstjórnar, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram að nýju erindi framkvæmdastjóra Íþrótta- og tómstundaráðs, dags. 18. þ.m., varðandi forval nr. ÍTR 10344: Samstarfsaðilar um þróunarverkefni, nýbyggingu, leiktæki og fl, sbr. 1. lið fundargerðar innkauparáðs frá 20. þ.m.
Frestað.
Framkvæmdastjóri Íþrótta- og tómstundaráðs og Stefán Stefánsson frá Innkaupastofnun sátu fundinn við meðferð málsins.

2. Lögð fram ákvörðun kærunefndar útboðsmála, dags. 24. þ.m., í máli GT verktaka ehf. gegn Innkaupastofnun Reykjavíkur, nr. 40/2004.

3. Lagt fram ljósrit auglýsingar Ríkiskaupa sem birtist í Morgunblaðinu 24. þ.m., um útboð á eftirliti með verklegum framkvæmdum. Innkauparáð óskar eftir upplýsingum frá Fasteignastofu um málið.

Fundi slitið kl. 14:20.

Hrólfur Ölvisson
Haukur Leósson Steinar Harðarson