Innkauparáð - Fundur nr. 462

Innkauparáð

Ár 2019, fimmtudaginn 15. ágúst var haldinn 462. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Viðstödd voru Sabine Leskopf, Alexandra Briem og Örn Þórðarson. Einnig sat fundinn Theodór Kjartansson frá embætti borgarlögmanns.

Fundarritari var Guðbjörg Eggertsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 12. ágúst 2019, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda D. Ing-Verks ehf. í útboði nr. 14604 Bústaðavegur. Kringlumýrarbraut - Háaleitisbraut. Göngu- og hjólastígur. R19070034.
    Samþykkt.

    Hildur Freysdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 12. ágúst 2019, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Snóks Verktaka ehf. í útboði nr. 14612 Vogabyggð 1 - Fyrsti áfangi 2019. Gatnagerð og lagnir. R19070100.
    Samþykkt.

    Hildur Freysdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

      Fylgigögn

    1. Lagt fram yfirlit innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar, dags. 6. ágúst 2019, yfir verkefni innkaupaskrifstofu f.h. skrifstofa og sviða í júlí 2019. R19010001.

      Fylgigögn

    2. Innkauparáð leggur fram svohljóðandi bókun, með vísan í 3. lið fundargerðar innkauparáðs frá 25. júlí 2019:

      Ekki þótti nauðsynlegt að hafa samband við umhverfis- og skipulagssvið varðandi „Breiðholtsskóla – Uppbyggingu“ þar sem í ljós kom að viðkomandi upphæð var skráð með virðisaukaskatti en viðmiðunarfjárhæðir innkaupareglna Reykjavíkurborgar eru án virðisaukaskatts.

    Fundi slitið klukkan 13:20

    Sabine Leskopf Alexandra Briem