Innkauparáð - Fundur nr. 297

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2013, föstudaginn 24. maí var haldinn 297. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12.19. Viðstaddir voru Stefán Jóhann Stefánsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Jórunn Frímannsdóttir. Einnig sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns og Guðbjörg Eggertsdóttir sérfræðingur á Innkaupadeild, sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1 Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 21. maí sl. þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., í útboði nr. 13024 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2013. R13040128.

Samþykkt.

Magnús Haraldsson og Theódór Guðfinnsson Umhverfis- og skipulagssviði sátu fundinn við meðferð málsins.

2 Lagt fram fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 21. maí sl., þar sem ákveðið hefur verið að ganga að tilboði Bjössa ehf. sem átti lægsta gilda tilboð í útboði nr. 12972 Réttarholtsskóli, endurgerð lóðar 2. áfangi.

Samþykkt.

Einnig lögð fram að nýju kvörtun Þórðar H. Sveinssonar hdl., vegna útboðs nr. 12972 sem frestað var á síðasta fundi. R13030141.

Magnús Haraldsson Umhverfis- og skipulagssviði sat fundinn við meðferð málsins.

Fundi slitið kl. 12.32

Stefán Jóhann Stefánsson (sign)

Elsa Hrafnhildur Yeoman (sign) Jórunn Frímannsdóttir (sign)

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparad_2405(1).pdf