Innkauparáð - Fundur nr. 264

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2012, mánudaginn 26. mars var haldinn 264. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:00. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, S. Björn Blöndal og Jórunn Frímannsdóttir. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á Innkaupaskrifstofu, Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Dagrún Hálfdánardóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu og Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 22. mars 2012, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Garðyrkjuþjónustunnar ehf., í kjölfar útboðs nr. 12755 Klapparstígur, endurgerð ofan Laugavegar. R12020024.

Samþykkt.

Ámundi Brynjólfsson og Ólafur Ólafsson Framkvæmda- og eignasviði sátu fundinn við afgreiðslu málsins.

Fundi slitið kl. 12:13

Kjartan Valgarðsson
S. Björn Blöndal Jórunn Frímannsdóttir