Innkauparáð - Fundur nr. 259

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2011, miðvikudaginn 30. nóvember var haldinn 259. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12.15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, Barði Jóhannsson og Jórunn Frímannsdóttir. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á innkaupaskrifstofu, Dagrún Hálfdánardóttir lögfræðingur á skrifstofu borgarlögmanns og Helgi Bogason deildarstjóri á innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Farið yfir innkaup umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar með vísan í 37. gr. Innkaupareglna Reykjavíkurborgar.
Örn Sigurðsson sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram til kynningar erindi framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 25. nóvember sl., varðandi gerð samnings um kaup á þjónustu THG arkitekta vegna byggingar þjónustumiðstöðvar í Spönginni 43. Einnig lagt fram minnisblað skrifstofu borgarlögmanns varðandi málið.
Ámundi Brynjólfsson Framkvæmda- og eignasviði sat fundinn við meðferð málsins.

Fundi slitið kl. 13.14

Kjartan Valgarðsson

Barði Jóhannsson Jórunn Frímannsdóttir