Innkauparáð - Fundur nr. 244

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2011, miðvikudaginn 18. maí var haldinn 244. fundur innkauparáðs. Fundurinn Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson og Barði Jóhannsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á Innkaupaskrifstofu, Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Dagrún Hálfdánardóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns og Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar dags. 16. maí sl., þar sem lagt er til að samið verði við Íslenska gámafélagið ehf. í EES útboði nr. 12588 Rammasamningur um sorphirðu fyrir Reykjavíkurborg. R11030038.

Samþykkt

Alma B. Hafsteinsdóttir sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 17. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Loftorku ehf. í útboði nr. 12603 Malbiksviðgerðir 2011. R11040098.

Samþykkt

Theodór Guðfinnsson sat fundinn við meðferð málsins.

Fundi slitið kl. 12:28

Kjartan Valgarðsson

Barði Jóhannsson