Innkauparáð - Fundur nr. 243

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2011, miðvikudaginn 11. maí var haldinn 243. fundur innkauparáðs. Fundurinn Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Barði Jóhannsson og Jórunn Frímannsdóttir. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á Innkaupaskrifstofu, Dagrún Hálfdánardóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns og Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 3. maí sl., þar sem lagt er til að tilboði Öryggismiðstöðvar Íslands verði tekið í kjölfar forvals / lokaðs útboðs nr. 12581 Öryggisgæsla fyrir Reykjavíkurborg. R11020050.

Samþykkt.

Berglind Söebech sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 2. maí sl., varðandi heimild til framhaldskaupa á klórgerðarbúnaði.

Innkauparáð vísar málinu til meðferðar hjá Innkaupaskrifstofu.

Magnús Haraldsson, Steinþór Einarsson, Ólafur Gunnarsson sátu fundinn við meðferð málsins.

Fundi slitið kl. 12:50

Barði Jóhannsson

Jórunn Frímannsdóttir