Innkauparáð - Fundur nr. 230

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2010, miðvikudaginn 20. október var haldinn 230. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:20. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson og S. Björn Blöndal. Jafnframt sátu fundinn Ingi B. Poulsen lögmaður á skrifstofu Borgarlögmanns og Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram að erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 14. október sl., þar sem lagt er til að tilboði Hlaðbæjar Colas hf. sem átti lægsta gilda tilboð sé tekið í EES útboði nr. 12475 Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2010 – 2013, útboð 2. R10080040.
Frestað.

Theodór Guðfinnsson Framkvæmda- og eignasviði sat fundinn við afgreiðslu málsins.

Fundi slitið kl. 12.35

Kjartan Valgarðsson

S. Björn Blöndal