Innkauparáð - Fundur nr. 216

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2010, þriðjudaginn 25. maí var haldinn 216. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.00. Viðstaddir voru Hallur Magnússon, Vilhjálmur Andri Kjartansson og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns og Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 20. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Verktakafélagsins Glaums ehf. í útboði nr. 12397 Reynisvatnsvegur við Lambhagaveg, aðalstígur og undirgöng. R10040078.
Samþykkt

2. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 21. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. í útboði nr. 12416 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2010, Útboð 1 - Vesturhluti. R10050024.
Samþykkt

3. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 21. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. í útboði nr. 12417 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2010, Útboð 2 – Austan Kringlumýrarbrautar. R10050025.
Samþykkt

4. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 21. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. í útboði nr. 12418 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2010, Útboð 3 – Austan Elliðavogs. R10050026.
Samþykkt

- Ámundi Brynjólfsson og Theodór Guðfinnsson Framkvæmda- og eignasviði sátu fundinn vegna mála 1, 2, 3 og 4.

Fundi slitið kl. 12.13

Hallur Magnússon

Vilhjálmur Andri Kjartansson Stefán Jóhann Stefánsson