Innkauparáð - Fundur nr. 202

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2009, þriðjudaginn 10. nóvember var haldinn 202. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.08. Viðstaddir voru Hallur Magnússon og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á innkaupaskrifstofu, Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu borgarlögmanns og Helgi Bogason deildarstjóri á innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 27. október sl., varðandi heimild til framlengingar á samningi við Íslenska Gámafélagið hf., vegna hreinsunar gatna og gönguleiða í Reykjavík 2007-2009 – Útboð I um eitt ár eða til 31. desember 2010. R06090032.
Samþykkt.

2. Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 27. október sl., varðandi heimild til framlengingar á samningi við Hreinsitækni hf., vegna hreinsunar gatna og gönguleiða í Reykjavík 2007-2009 – Útboð II um eitt ár eða til 31. desember 2010. R06090033.
Samþykkt.

Sighvatur Arnarsson og Guðbjartur Sigfússon framkvæmda- og eignasviði sat fundinn vegna mála 1 og 2.

Fundi slitið kl. 11.24

Hallur Magnússon

Stefán Jóhann Stefánsson