Innkauparáð - Fundur nr. 187

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2009, þriðjudaginn 2. júní var haldinn 187. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.00. Viðstaddir voru Vilhjálmur Andri Kjartansson, Brynjar Fransson og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á innkaupaskrifstofu Helgi Bogason deildarstjóri á innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 28. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar Höfða ehf. í útboði nr. 12263, Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2009 Útboð 1 – Vestan Elliðavogs. Samþykkt. R09050054.

2. Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 28. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. í útboði nr. 12264, Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2009 Útboð 2. R09050055.
Samþykkt.

3. Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 28. maí sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar Höfða ehf. í útboði nr. 12265, Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2009 Útboð 3 – Austan Kringlumýrarbrautar. R09050056.
Samþykkt.

Theodór Guðfinnsson framkvæmda- og eignasviði sat fundinn við meðferð mála 1-3.

4. Lagt fram til kynningar úrskurður kærunefndar útboðsmála frá 26. maí sl. varðandi framkvæmd rammasamninga, í máli Office 1 gegn Ríkiskaupum.

Fundi slitið kl. 11.26

Vilhjálmur Andri Kjartansson

Brynjar Fransson Stefán Jóhann Stefánsson