Innkauparáð - Fundur nr. 183

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2009, þriðjudaginn 7. apríl var haldinn 183. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11:00. Viðstaddir voru, Vilhjálmur Andri Kjartansson, Brynjar Fransson og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu borgarlögmanns, Helgi Bogason deildarstjóri á innkaupaskrifstofu og Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi innkaupaskrifstofu dags. 6. apríl sl., varðandi EES útboð nr. 12193 Rammasamningur um ritföng og skrifstofuvörur, ásamt rekstrarvörum fyrir tölvur, prentara og ljósritunarvélar R08100326.

Innkaupaskrifstofa leggur til að öllum tilboðum í hluta 1 ritföng og skrifstofuvörur verði hafnað og hann boðinn út að nýju og að í hluta 2 rekstrarvörur fyrir tölvur, prentara og ljósritunarvélar verði samið við neðangreinda birgja:
Tegundir:
HP EJS Opin kerfi Nýherji Optíma
Kyocera Nýherji EJS Optíma
Lexmark Nýherji EJS
Ricoh Optíma
Nashuatec Optíma
Dell Nýherji EJS
Canon Nýherji EJS
Epson Nýherji EJS
Zerox Nýherji EJS
Konica Nýherji EJS

Samþykkt.

2. Lagt fram yfirlit innkaupaskrifstofu dags. 6. apríl sl. yfir viðskipti við skrifstofuna í mars 2009. R09010086.

Fundi slitið kl. 11.20

Vilhjálmur Andri Kjartansson

Brynjar Fransson Stefán Jóhann Stefánsson