Innkauparáð - Fundur nr. 181

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2009, þriðjudaginn 31. mars var haldinn 181. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.00. Viðstaddir voru, Vigdís Hauksdóttir, Vilhjálmur Andri Kjartansson og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á innkaupaskrifstofu, Ingi B. Poulsen lögfræðingur á skrifstofu borgarlögmanns, Helgi Bogason deildarstjóri á innkaupaskrifstofu og Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram tillaga í framhaldi af bókun innkauparáðs 17. mars sl. varðandi mögulegar breytingar á kröfum um fjárhagslegt hæfi bjóðenda í innkaupum Reykjavíkurborgar, sem skal gilda í 6 mánuði frá fullnaðarsamþykkt.

Frestað.

2. Önnur mál.

Fundi slitið kl. 11.50

Vigdís Hauksdóttir

Vilhjálmur Andri Kjartansson Stefán Jóhann Stefánsson