Innkauparáð - Fundur nr. 156

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2008, þriðjudaginn 22. janúar var haldinn 156. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11:30. Viðstaddir voru Ingólfur Sveinsson, Stefán Jóhann Stefánsson og Benedikt Geirsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á Innkaupaskrifstofu, Helgi Bogason deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu, Ingi B. Poulsen lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns og Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 17. janúar sl., þar sem óskað er eftir heimild til að framlengja verksamningi við Drafnarfell ehf. um eitt ár vegna fræsunar malbiksslitlaga í Reykjavík. R05040251.
Samþykkt.
Guðbjartur Sigfússon Framkvæmdasviði sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 14. janúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Heimis og Þorgeirs ehf. í útboði nr. 12066, Reynisvatnsás og Reynisvatnsvegur, gatnagerð og lagnir. R07120098.
Samþykkt með atkvæðum meirihluta.

3. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 14. janúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Ásbergs ehf. í útboði nr. 12062, Sléttuvegur, nýtt íbúðarhverfi, gatnagerð og lagnir. R07120061.
Samþykkt.

4. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 14. janúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Klæðningar ehf. í útboði nr. 12065, Hringbraut, efnishaugar – flutningar á Hólmsheiðartipp. R07120095.
Samþykkt.

5. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 17. janúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Almennu verkfræðistofunnar hf. í útboði nr. 12068, Reynisvatnsás og Reynisvatnsvegur, gatnagerð og lagnir - Eftirlit. R07120108.
Samþykkt.

6. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 18. janúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Verktaka Magna ehf. í útboði nr. 12067, Hádegismóar 2. áfangi, gatnagerð og lagnir. R07120099.
Samþykkt.

7. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 14. janúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Silfursteins ehf. í útboði nr. 12051, Félagshús íþróttafélagsins Leiknis, uppsteypa og fullnaðarfrágangur. R07110171.
Samþykkt.

Ámundi Brynjólfsson Framkvæmdasviði sat fundinn við meðferð mála 2 - 7.

Fundi slitið kl. 12:06

Ingólfur Sveinsson
Stefán Jóhann Stefánsson Benedikt Geirsson