Innkauparáð - Fundur nr. 148

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2007, þriðjudaginn 21. ágúst, var haldinn 148. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11:00. Viðstaddir voru Ingólfur Sveinsson, Marta Guðjónsdóttir og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson innkaupastjóri á Innkaupaskrifstofu og Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar dags. 19. ágúst sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Opinna kerfa hf., Nýherja hf., EJS ehf. og Sensa ehf., í útboði nr. 10941 “Rammasamningur um tölvur og netbúnað”. R07070039.
Samþykkt.
Eggert Ólafsson Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar, sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram yfirlit Innkaupaskrifstofu dags. 9. ágúst sl., yfir viðskipti við skrifstofuna í júlí 2007. R07010040.

Fundi slitið kl. 11:40.

Ingólfur Sveinsson
Marta Guðjónsdóttir Stefán Jóhann Stefánsson