Innkauparáð - Fundur nr. 132

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2007, miðvikudaginn 24. janúar var haldinn 132. fundur innkauparáðs. Fundurinn var hald¬inn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:20. Viðstaddir voru Ingólfur Sveinsson, Marta Guðjónsdóttir og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sat fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir, lögfræðingur á lögfræðiskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Framkvæmdasviðs dags. 18. janúar 2007 þar sem lagt var til að tekið verði tilboði lægstbjóðanda, Háfells ehf., í útboðinu Hallar, atvinnusvæði við Vesturlandsveg - Gatnagerð og veitur.
Samþykkt.

Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri mannvirkjaskrifstofu Framkvæmdasviðs kynnti erindið.

2. Lögð fram tilkynning frá Framkvæmdasviði dags. 20. janúar 2007 til innkauparáðs vegna þátttöku í lokuðu útboði vegna nýrrar aðstöðu fyrir Strætó bs. að Hesthálsi 14.

Fundi slitið kl. 12:40.

Ingólfur Sveinsson

Marta Guðjónsdóttir Stefán Jóhann Stefánsson