Innkauparáð - Fundur nr. 126

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2006, miðvikudaginn 4. október, var haldinn 126. fundur innkauparáðs. Fundurinn var hald¬inn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:30. Viðstaddir voru Ingólfur Sveinsson, Marta Guðjónsdóttir og Stefán Jóhann Stefánsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson, skrifstofustjóri innkaupa- og rekstrarskrifstofu, Helgi Bogason, sérfræðingur á innkaupa- og rekstrarskrifstofu, Guðbjörg Eggertsdóttir, deildarstjóri á innkaupa- og rekstrarskrifstofu, og Eyþóra K. Geirsdóttir, lögfræðingur á lögfræðiskrifstofu sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Menntasviðs dags. 26. september sl. um að tekið verði tilboði Hópferðamiðstöðvarinnar í útboði á akstri nemenda í grunnskólum Reykjavíkur, en það var jafnframt hagkvæmast.
Innkauparáð samþykkti erindið.

2. Lögð fram tilkynning Framkvæmdasviðs dags. 15. september sl. um fyrirhuguð útboð á Evrópska Efnahagssvæðinu á sópun gatna og gönguleiða.

3. Lögð fram skýrsla innkaupa- og rekstrarskrifstofu dags. 2. október sl. um viðskipti sviða við skrifstofuna í september 2006.

Fundi slitið kl. 14:15

Ingólfur Sveinsson
Marta Guðjónsdóttir Stefán Jóhann Stefánsson