Innkauparáð - Fundur nr. 105

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2006, miðvikudaginn 18. janúar, var haldinn 105. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13.00. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes T. Sigursveinsson og Haukur F. Leósson. Jafnframt sátu fundinn Kristbjörg Stephensen, skrifstofustjóri lögfræðiskrifstofu, Ólafur Jónsson, skrifstofustjóri innkaupa- og rekstrarskrifstofu, Helgi Bogason, sérfræðingur á innkaupa- og rekstrarskrifstofu, Guðbjörg Eggertsdóttir, deildarstjóri á innkaupa- og rekstrarskrifstofu og Eyþóra Kristín Geirsdóttir, lögfræðingur á lögfræðiskrifstofu, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt er fram að nýju erindi Framkvæmdasviðs dags. 12. janúar sl., þar sem óskað er eftir að innkauparáð heimili að gengið verði til beinna samningaviðræðna við Íslenska aðalverktaka hf. um að taka að sér hluta undirbúningsframkvæmda vegna lóðar fyrir tónlistar- og ráðstefnuhús ásamt umsjón með heildarframkvæmdum Reykjavíkurborgar tengdum tónlistar- og ráðstefnuhúsi án undangengins útboðs.
Frestað
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri Framkvæmdasviðs, og Ólafur Bjarnason, aðstoðarsviðsstjóri Framkvæmdasviðs, sátu fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt er fram bréf Framkvæmdasviðs dags. 14. janúar sl., þar sem farið er fram á að innkauparáð heimili að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Heimis og Þorgeirs ehf., í verkið Úlfarsárdalur IV., 1. áfangi, gatnagerð og lagnir (verk nr. 10652).
Samþykkt.

3. Umræða um fyrirhugað útboð á kjöti.

4. Lagður fram úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli EJS ehf. gegn Reykjavíkurborg.

Fundi slitið kl. 14:04.

Hrólfur Ölvisson

Jóhannes T. Sigursveinsson Haukur F. Leósson