Innkauparáð - Fundur nr. 102

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2005, miðvikudaginn 14. desember, var haldinn 102. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 16.00. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes T. Sigursveinsson og Haukur F. Leósson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson, skrifstofustjóri innkaupa- og rekstrarskrifstofu, Helgi Bogason, sérfræðingur á innkaupa- og rekstrarskrifstofu og Eyþóra Kristín Geirsdóttir, lögfræðingur á lögfræðiskrifstofu, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram bréf Framkvæmdasviðs dags. 13. desember sl., þar sem lagt er til að tekið verði tilboði Siemens í verkefnið “New Traffic signal system in Reykjavík 2005”. R05060117
Samþykkt.

2. Ólafur Kr. Hjörleifsson, lögfræðingur á skrifstofu borgarstjórnar, mætti á fundinn og kynnti tillögur skrifstofu borgarstjórnar að breytingum á samþykktum innkauparáðs Reykjavíkurborgar.

Fundi slitið kl. 16:20.

Hrólfur Ölvisson
Jóhannes T. Sigursveinsson Haukur F. Leósson