Innkauparáð - Fundur nr. 101

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2005, miðvikudaginn 14. desember, var haldinn 101. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13.00. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes T. Sigursveinsson og Haukur F. Leósson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur Jónsson, skrifstofustjóri innkaupa- og rekstrarskrifstofu, Guðbjörg Eggertsdóttir, deildarstjóri á innkaupa- og rekstrarskrifstofu og Eyþóra Kristín Geirsdóttir, lögfræðingur á lögfræðiskrifstofu, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram bréf skrifstofu gatna- og eignaumsýslu Framkvæmdasviðs dags. 5. desember sl., þar sem óskað er heimildar til að framlengja verksamning við Uppdælingu ehf. frá árinu 2003 um sandskipti 2003, 2004 og 2005 um eitt ár.
Frestað.
Sighvatur Arnarsson, skrifstofustjóri gatna- og eignaumsýslu Framkvæmdasviðs, sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram bréf Framkvæmdasviðs dags. 13. desember sl., þar sem lagt er til að tekið verði tilboði Siemens í verkefnið “New Traffic signal system in Reykjavík 2005”. R05060117
Frestað.
Ámundi Brynjólfsson og Höskuldur Tryggvason, frá Framkvæmdasviði, sátu fundinn við meðferð málsins.

Fundi slitið kl. 13:20.

Hrólfur Ölvisson
Jóhannes T. Sigursveinsson Haukur F. Leósson