Innkauparáð
INNKAUPARÁÐ
Ár 2003, miðvikudaginn 9. apríl, var haldinn 6. fundur Innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.00. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes Sigursveinsson og Haukur Leósson. Jafnframt sat Sjöfn Kristjánsdóttir, forstjóri Innkaupastofnunar, fundinn. Fundarritari var Jónína H. Björgvinsdóttir.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram bréf Fasteignastofu frá 8. þ.m. varðandi alútboð og val á verktökum í byggingu færanlegs tveggja deilda leikskóla að Bakkastöðum 77. Tveir af þremur umsækjendum uppfylla ekki skilyrði fyrir útboðsgögnum. Útboðið er því fellt niður. Jafnframt er veitt heimild til samningskaupaumleitanna við SG-hús.
2. Lagt fram yfirlit Innkaupastofnunar frá 7. þ.m. yfir viðskipti stofnunarinnar í mars.
Fundi slitið kl. 12.55.
Hrólfur Ölvisson
Jóhannes Sigursveinsson Haukur Leósson