Innkauparáð - Fundur nr. 51

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2004, mánudaginn 24. maí, var haldinn 51. fundur s. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13.00. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes Sigursveinsson og Haukur Leósson. Jafnframt sátu fundinn Sjöfn Kristjánsdóttir forstjóri Innkaupastofnunar og Ólafur Kr. Hjörleifsson skrifstofustjóri borgarstjórnar, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram bréf Innkaupastofnunar, dags. í dag, varðandi niðurstöðu matsnefndar í útboði vegna rammasamnings um kaup á ljósritunarpappír fyrir stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar, þar sem lagt er til að gerðir verði rammasamningar til tveggja ára við Egilsson hf, Pennan hf. og Prentsmiðjuna Odda hf. Jafnframt lögð fram bréf Innkaupastofnunar um skoðun á fjárhag fyrirtækjanna, dags. 16. f.m. og í dag. Þá er lögð fram umsögn borgarlögmanns, dags. 19. þ.m. Erindi innkaupastofnunar samþykkt. Guðbjörg Eggertsdóttir frá Innkaupastofnun sat fundinn við meðferð málsins.

2. Lagt fram erindi gæðastjóra EJS hf. frá 21. þ.m. varðandi niðurstöðu útboðs um kaup á fartölvubúnaði, sbr. 2. liður fundargerðar innkauparáðs 28. f.m. Vísað til umsagnar deildarstjóra tölvudeildar fræðslumiðstöðvar.

Fundi slitið kl. 13.40.

Hrólfur Ölvisson
Jóhannes Sigursveinsson Haukur Leósson