Innkauparáð
INNKAUPARÁÐ
Ár 2018, föstudaginn 16. febrúar var haldinn 417. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 11:20. Viðstödd voru Dóra Magnúsdóttir, Magnea Guðmundsdóttir og Björn Gíslason. Auk þeirra sat Jóna Björg Sætran áheyrnarfulltrúi fundinn.
Fundarritari var Guðbjörg Eggertsdóttir.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 13. febrúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjóts ehf. í útboði nr. 14125 Æfingasvæði Víkings. Endurbætur. R18010110.
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 12. febrúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Gleipni verktaka ehf. sem átti lægsta gilda tilboð í útboði nr. 14136 Suðurlandsbraut milli Engjavegar og Langholtsvegar. Göngu- og hjólastígar. Endurbætur. R18010211.
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
3. Lagt fram yfirlit skrifstofu miðlægrar stjórnsýslu Reykjavíkurborgar varðandi einstök innkaup yfir 1. m.kr. á 4. ársfjórðungi 2017. R17010075.
Innkauparáð gerir ekki athugasemdir við framlagt yfirlit.
4. Lagt fram yfirlit innkaupadeildar Reykjavíkurborgar yfir verkefni innkaupadeildar f.h. skrifstofa og sviða í janúar 2018. R18010001.
Innkauparáð gerir ekki athugasemdir við framlagt yfirlit.
Fundi slitið kl. 11:49
Dóra Magnúsdóttir [sign]
Magnea Guðmundsdóttir [sign] Björn Gíslason [sign]